07:03
Morgunvaktin
Þjóðaratkvæðagreiðslan og stangveiði

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Fjallað var um niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB mál. Alþingismennirnir Árni Helgason Sjálfstæðisflokki og María Rut Kristinsdóttir Viðreisn fóru yfir málið og framhaldið. Björn Malmquist, fréttamaður í Brussel, ræddi við greinendur hjá Evrópuhugveitu þar í borg og sagði líka frá því sem er á döfinni hjá Evrópusambandinu.

Stangveiðin hefur gengið misjafnlega í sumar, eftir ám og tímabilum og tegundum. Gunnar Bender, ritstjóri Sportveiðiblaðsins, spjallaði um lax, silung og sjóbirting.

Tónlist:

Tíminn og vatnið - Steinn Steinarr,

Það vex eitt blóm fyrir vestan - Imba,

Eftirmæli - Bergþóra Árnadóttir,

Undir birkitré - Svavar Knútur og Kristjana Stefánsdóttir.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,