Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Barþjónninn Róbert Aron Proppé hefur tryggt sér sæti í lokaúrslitum alþjóðlegu barþjónakeppninnar Hennessy MyWay eftir sigur í svæðisúrslitum sem fóru fram í Kaupmannahöfn. Róbert er afreksmaður í sínu fagi og vann Íslandsmeistaratitil barþjóna árið 2025. Sama ár keppti hann fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti barþjóna, þar sem hann hafnaði meðal 15 efstu keppenda heims. Róbert var á línunni
Okkar allra besti Guðmundur Jóhannsson kemur til okkar og ræddi kosti og galla gervigreindar.
Eftir langa og stranga kosningabaráttu er niðurstaða komin í málið. Ljóst er að tæpur helmingur þjóðarinnar situr eftir með sárt ennið og við ræddum næstu skref við frú Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands.
Bandaríkin og Kanada hafa tekist á eftir að það slitnaði upp úr viðræðum ríkjanna um tollasamning. Í kjölfarið voru ofurtollar settar á kanadískar vörur í Bandaríkjunum sem Kanada svaraði með ofurtollum á bandarískar vörur í landinu. Trump hefur farið mikinn í kjölfarið og við ræddum þetta mál og stöðu forsetans í Bandaríkjunum við Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor.
