Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Bogi Ágústsson settist við Heimsgluggann. Stjórnmál voru til umfjöllunar, annars vegar í Svíþjóð þar sem Svíþjóðardemókratar virðast hafa stundað skipulagt og umfangsmikið netníð - og hins vegar í Katalóníu á Spáni þar sem flokkar aðskilnaðarsinna fengu skell í þingkosningum á dögunum og virðist sem sjálfstæðisdraumar þar séu úr sögunni - í bili amk. Bogi ræddi við Jóhann Hlíðar Harðarson á Spáni um þau mál.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir forsetakosningarnar hefur nú staðið yfir um hríð. Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri landskjörstjórnar fór yfir það með okkur hvar og hvenær hægt er að kjósa hér innan lands; en ekki síður hvernig fólk í útlöndum ber sig að; og þá sérstaklega fólk sem býr fjarri sendiráðum og skrifstofum ræðismanna.
Eins og við sögðum frá á þriðjudaginn voru Krakkafréttirnar okkar í Sjónvarpinu verðlaunaðar á dögunum fyrir bestu krakkafrétt síðasta árs meðal stöðva í Samtökum evrópskra sjónvarpsstöðva. Við notuðum tilefnið og fjölluðum um krakkafréttir; um skrif og miðlun frétta fyrir krakka; þetta er auðvitað vandmeðfarið í heimi sem er uppfullur af stríðsátökum og öðrum hörmungum. Karitas M. Bjarkadóttir krakkafréttastjóri kom til okkar.
Tónlist:
Eyjólfur Kristjánsson - Stund milli stríða.
Redman, Joshua - Baltimore.
Eyjólfur Kristjánsson - Gott.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Í dag brugðum við okkur úr húsi og sendum út Mannlega þáttinn frá Skógarhlíð 14 þar sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er til húsa. Slökkvilið er byggðasamlag frá árinu 2000 stofnað af Reykjavíkurborg, Garðabæ, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesbæ og Sveitarfélaginu Álftanesi. Verkefnin eru fjölbreytt eins og við komumst að í þættinum, útkallsþjónusta og forvarnir.
Viðmælendur okkar voru Jón Viðar Matthíasson Slökkviliðsstjóri, Róbert Ægir Hrafnsson, bráðatæknir, en bráðatæknar eru þeir sem hafa mesta menntun í sjúkraflutningunum, og Aldís Rún Lárusdóttir, sviðsstjóri forvarnarsviðs.
Tónlist í þættinum í dag:
Ég er á leiðinni / Brunaliðið (Magnús Eiríksson)
Eldur / Heimilistónar (Heimilistónar)
Never Ever Let You Go / Rollo and King (Sören Poppe, Stefan Nielsen, Thomas Brekling)
Where do you go to my lovely / Petar Sarstedt (Peter Sarstedt)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Mannbjörg varð út af Garðskaga í nótt eftir að strandveiðibát hvolfdi. Grunur er um að stórt flutningaskip hafi siglt á hann og því var stefnt til hafnar. Sjómaður sem bjargaði vini sínum segir þetta sinn dýrmætasta róður. Hann telur einsýnt að flutningaskipið hafi hvolft bátnum.
Ástand forsætisráðherra Slóvakíu, sem var sýnt banatilræði í gær, er stöðugt en alvarlegt. Sá sem grunaður er um verknaðinn hefur verið kærður fyrir morðtilraun.
Það gengur ekki að skera niður fé til lögreglunnar segja formaður og áheyrnarfulltrúi í fjárlaganefnd Alþingis. Krafa í fjármálaáætlun um aðhald vekur lögreglumönnum ugg.
Ný ríkisstjórn í Hollandi ætlar að segja sig frá innflytjendastefnu Evrópusambandsins og koma á ströngustu stefnu sem sett hefur verið þar. Samið var um myndun ríkisstjórnar í nótt eftir sex mánaða viðræður.
Hafrannsóknastofnun hafa aldrei borist jafn margir eldislaxar úr íslenskum laxveiðiám og á síðasta ári. Talsmaður laxveiðimanna telur að leggja ætti enn meiri áherslu á að sleppa villtum laxi til að styrkja stofninn í baráttunni við strokulax.
Herða á lög vegna notkunar rafhlaupahjóla. Lagt er til að aldurstakmark verði hækkað og skerpt á reglum þegar grunur er um ölvun.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Fyrir hvert Ólympíugull í frjálsum íþróttum í París í sumar ætlar alþjóða frjálsíþróttasambandið að greiða sem nemur sjö milljónum króna í verðlaunafé. Þetta verður í fyrsta sinn sem íþróttafólk fær greitt fyrir verðlaun á Ólympíuleikum. Ákvörðunin hefur verið harðlega gagnrýnd, meðal annars af Alþjóða Ólympíusambandinu og ðrum alþjóðlegum íþróttasamböndum.
Aðeins verður greitt fyrir gullverðlaun, og aðeins í frjálsum íþróttum.
Alþjóða frjálsíþróttasambandið er eina íþróttasambandið sem hefur tekið ákvörðun um að veita verðlaunafé á leikunum. Hvorki Alþjóða Ólympíusambandið né önnur alþjóðleg íþróttasambönd sem taka þátt í leikunum voru með í ráðum.
Sebastian Coe, formaður alþjóða frjálsíþróttasambandsins, hefur þurft að verja þessa ákvörðun. Hann segir að peningaverðlaunin séu til að sýna afreksfólkinu að þeirra framlag til leikanna skipti máli, að þeirra hlutverk í að tryggja velgengni Ólympíuleikanna sé mikils metið. Það sé jú íþróttafólkið sem trekki að, geri leikana að því sem þeir eru, og því skyldi það ekki fá hlutdeild í tekjunum sem Ólympíuleikarnir skapa.
Verðlaunafé tíðkast á mörgum íþróttamótum, en í 128 ára sögu nútíma Ólympíuleika hafa aldrei áður verið veitt peningaverðlaun.
Rætt er við Hafrúnu Kristjánsdóttur íþróttasálfræðing og Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamann.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Við ætlum að forvitnast um réttarhöld sem nú fara fram yfir Donald Trump fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og nú aftur forsetaframbjóðanda. Málið snýst um greiðslur til klámmyndaleikkonunnar sem kallar sig sig Stormy Daniels sem voru greiddar til að tryggja að hún segði ekki opinberlega frá sambandi sínu við forsetann fyrrverandi í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Og hvaðan greiðslurnar komu þegar upp var staðið. Við tölum um þetta mál við Friðjón R. Friðjónsson sem er sérstakur áhugamaður um bandarísk stjórnmál og hefur fylgst grannt með.
Svo ræðum við neytendamál við Bryndísi Pétursdóttur framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna. Umfjöllunarefnið er forsíðuefni nýjasta tölublaðs Neytendablaðsins þar sem fjallað er um litarefni í matvælum sem sum geta verið óholl - sérstaklega börnum.
Við fáum svo umhverfispistil í lok þáttar frá ungum umhverfissinna, Ester Jónsdóttur.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Tónskáldið Ludwig van Beethoven var mikill náttúruunnandi og fór oft í langar gönguferðir um skóga og engi. Hlustendur fá að kynnast Beethoven í vorskapi, leiknar verða tónsmíðar eftir hann sem tengjast vori og guðsgrænni náttúrunni. Meðal annars verða fluttir þættir úr fiðlusónötu Beethovens nr. 5 sem kölluð er Vorsónatan, sinfóníu hans nr. 6 sem nefnist Pastoralsinfónían og píanósónötu nr. 15 í D-dúr sem kölluð er Pastoralsónatan. Orðið „Pastorale" þýðir „hjarðljóð" og er oft notað um tónlist sem á að lýsa fagurri náttúru. Einnig verða fluttir nokkrir vorsöngvar eftir Beethoven. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Á sýningunni Vaxtaverkir í Árbæjarsafni setur hönnunarhópurinn ÞYKJÓ fram skólasögu Reykjavíkur á frumlegan hátt. Þróun námsgreina og kennsluaðferða er miðlað á óvæntan hátt með dýrmætum safngripum, ljósmyndum og frásögnum frá fyrri tíð. Við hittum Sigríði Sunnu Reynisdóttur, listrænan stjórnanda Þykjó, í Árbæjarsafni í þætti dagsins og ræðum um sýninguna.
Við bryggjuna í Gufunesi hafa vaskir nemar í arkitektúr hannað og smíðað aðstöðu til sjósundsiðkunar undanfarnar vikur. Aðstaðan var formlega opnuð um síðustu helgi svo nú gefst sundfólki kostur á að komast í sundfötin í skjóli og komast út í sjó án þess að klöngrast yfir varnargarðinn. Við höldum í Gufunesið í þætti dagsins og hittum fyrir nokkra nema og Birtu Fróðadóttur, lektor og fagstjóri yfir BA arkitektúr við LHÍ.
Og Gréta Sigríður Einarsdóttir fjallar um Orðabók hinna týndu orða eftir Pip Williams, sem kom nýverið út í þýðingu Ugga Jónssonar.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg verður haldin á Patreksfirði í sautjánda sinn um helgina, og við ætlum að hefja Lestina í dag á því að taka stöðuna á skipuleggjendum hátíðarinnar.
Guðrún Úlfarsdóttir, pistlahöfundur, fjallar um hljómsveitina The Shaggs. Fyrsta plata þeirra, The Philosophy of the World, kom út seint á sjöunda áratugnum og þykir ýmist meistaraverk, eða ein versta plata allra tíma.
Við heimsækjum Gallerý Port sem er flutt í glænýtt húsnæði við glænýja götu í Reykjavík. Gallerý Port er listamannarekið gallerý og um þessar mundir stendur yfir sýning Narfa Þorsteinssonar, Hús fundur.
Kvöldfréttir útvarps
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir fjármálaáætlun stjórnvalda til ársins 2029 of almenna og erfitt að sjá hvað í henni felst. Honum líst ekki á þær aðhaldskröfur sem gerðar eru til embættis hans.
Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, sem særðist lífhættulega í skotárás í gær, er með meðvitund og fær um að tala, en mjög máttfarinn. Þetta sagði Peter Pelligrini, bandamaður Ficos og verðandi forseti landsins.
Dómsmálaráðherra segir breytingar á útlendingalögum nauðsynlegar til að draga úr kostnaði og fækka umsóknum um alþjóðlega vernd. Önnur umræða um frumvarpið hófst á Alþingi í dag.
Skipstjóri og tveir stýrimenn flutningaskipsins Longdawn hafa verið handteknir vegna gruns um að hafa siglt á strandveiðibát út af Garðskaga í nótt. Ekki er talið að um ásetning hafi verið að ræða.
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur til rannsóknar ofbeldisbrot manns gegn konu fyrir utan Götubarinn í miðbæ Akureyrar.
Suður-Afríka fer fram á það við Alþjóðadómstólinn í Haag að hann krefjist þess að Ísrael láti af hernaðaðgerðum. Ísraelar segja engan fót fyrir ásökunum Suður Afríku.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Alexander Kristjánsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
16. maí 2024
Viðtöl Spegilsins við frambjóðendur til embættis forseta Íslands halda áfram. Í þessum þætti ræðir Freyr Gígja Gunnarsson við Höllu Hrund Logadóttur.
Utanríkisráðherrar Íslands og þriggja Evrópusambandsríkja; Eistlands, Lettlands og Litáens, héldu til Georgíu í gær til að ræða við ráðamenn úr stjórn og stjórnarandstöðu og sýna samstöðu með þeim sem mótmælt hafa umdeildum lögum sem Georgíuþing samþykkti í vikunni. Rætt er við Björn Malmquist, fréttaritara RÚV í Brussel, um afstöðu ESB til málsins og líkindi ástandsins í Georgíu nú með ástandinu í Úkraínu 2014.
Þingvallanefnd hefur forkaupsrétt að öllum sumarhúsum innan þjóðgarðsins sem fara á markað. Oftast eru þetta gömul og illa farin hús sem flest eru fjarlægð og ekkert byggt í staðinn. Það vakti því nokkra athygli þegar nefndin ákvað síðasta sumar að nýta forkaupsrétt að einu elsta sumarhúsi þjóðgarðsins, en rífa það ekki - að minnsta kosti ekki strax. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Einar Ágúst Sæmundsen þjóðgarðsvörð um hugmyndir sem uppi eru um að opna aftur kaffihús í þjóðgarðinum.
Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Í þessum þáttum köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Í hverjum þætti heyrum við tvær eða þrjár þjóðsögur frá ýmsum heimshornum.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Þjóðsögur þáttarins:
Sagan af Kolrössu krókríðandi (Ísland)
Drekarnir fjórir (Kína)
Leikraddir:
Arna Rún Gústafsdóttir
Eva Rún Þorgeirsdóttir
Hekla Egilsdóttir
Jóhannes Ólafsson
Karl Pálsson
Mikael Emil Kaaber
Ragnar Eyþórsson
Sigyn Blöndal
Sturla Holm SKúlason
Sérfræðingur í þjóðsögum: Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands
Lestur og umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Veðurstofa Íslands.
Beinar útsendingar frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg, Hörpu.
Hljóðritun frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem fram fóru í Eldborg, Hörpu, 10. maí sl.
Á efnisskrá:
*Sönglög eftir Edvard Grieg.
*Básúnukonsert eftir Bo Holten.
*Sinfónía nr. 6 eftir Jean Sibelius.
Einsöngvari: Arnheiður Eiríksdóttir.
Einleikari: Jesper Busk Sørensen.
Stjórnandi: Thomas Søndergärd.
Umsjón: Ása Briem.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Við ætlum að forvitnast um réttarhöld sem nú fara fram yfir Donald Trump fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og nú aftur forsetaframbjóðanda. Málið snýst um greiðslur til klámmyndaleikkonunnar sem kallar sig sig Stormy Daniels sem voru greiddar til að tryggja að hún segði ekki opinberlega frá sambandi sínu við forsetann fyrrverandi í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Og hvaðan greiðslurnar komu þegar upp var staðið. Við tölum um þetta mál við Friðjón R. Friðjónsson sem er sérstakur áhugamaður um bandarísk stjórnmál og hefur fylgst grannt með.
Svo ræðum við neytendamál við Bryndísi Pétursdóttur framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna. Umfjöllunarefnið er forsíðuefni nýjasta tölublaðs Neytendablaðsins þar sem fjallað er um litarefni í matvælum sem sum geta verið óholl - sérstaklega börnum.
Við fáum svo umhverfispistil í lok þáttar frá ungum umhverfissinna, Ester Jónsdóttur.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Í dag brugðum við okkur úr húsi og sendum út Mannlega þáttinn frá Skógarhlíð 14 þar sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er til húsa. Slökkvilið er byggðasamlag frá árinu 2000 stofnað af Reykjavíkurborg, Garðabæ, Hafnarfjarðarbæ, Kópavogsbæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesbæ og Sveitarfélaginu Álftanesi. Verkefnin eru fjölbreytt eins og við komumst að í þættinum, útkallsþjónusta og forvarnir.
Viðmælendur okkar voru Jón Viðar Matthíasson Slökkviliðsstjóri, Róbert Ægir Hrafnsson, bráðatæknir, en bráðatæknar eru þeir sem hafa mesta menntun í sjúkraflutningunum, og Aldís Rún Lárusdóttir, sviðsstjóri forvarnarsviðs.
Tónlist í þættinum í dag:
Ég er á leiðinni / Brunaliðið (Magnús Eiríksson)
Eldur / Heimilistónar (Heimilistónar)
Never Ever Let You Go / Rollo and King (Sören Poppe, Stefan Nielsen, Thomas Brekling)
Where do you go to my lovely / Petar Sarstedt (Peter Sarstedt)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg verður haldin á Patreksfirði í sautjánda sinn um helgina, og við ætlum að hefja Lestina í dag á því að taka stöðuna á skipuleggjendum hátíðarinnar.
Guðrún Úlfarsdóttir, pistlahöfundur, fjallar um hljómsveitina The Shaggs. Fyrsta plata þeirra, The Philosophy of the World, kom út seint á sjöunda áratugnum og þykir ýmist meistaraverk, eða ein versta plata allra tíma.
Við heimsækjum Gallerý Port sem er flutt í glænýtt húsnæði við glænýja götu í Reykjavík. Gallerý Port er listamannarekið gallerý og um þessar mundir stendur yfir sýning Narfa Þorsteinssonar, Hús fundur.
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Við heyrðum í Önnu Kristinsdóttur, mannréttindastjóra borgarinnar um kjör á Reykvíkingi ársins.
Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu hóf nýlega starfsemi. Við fengum Þórdísi Jónu Sigurðardóttur, forstjóra Miðstöðvarinnar til okkar.
Hvað velur fólk að gera til að fást sem best við yfirvofandi snjóhengju og hvað ráðleggja bankarnir? Jónas R. Stefánsson sérfræðingur í viðskiptalausnum hjá Landsbankanum kom til okkar.
Þórhildur Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu kom til okkar að ræða öryggi í umferðinni og rafræn ökupróf.
Silja Bára Ómarsdóttir prófessor við stjórnmálafræðideild HÍ ræddi öryggis- og afvopnunarmál við okkur.
Tónlist:
HIPSUMHAPS - Góðir hlutir gerast hææægt.
The Stranglers - Golden Brown.
Kristín Sesselja - Exit Plan.
HOOTIE & THE BLOWFISH - Only wanna be with you.
SILFURTÓNAR - Töfrar.
ALICE MERTON - No Roots.
PRINS PÓLÓ - Læda slæda.
SCORPIONS - Wind of change.
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Sveinn Guðmundsson talsmaður tónlistarhátíðirinnar Mellodica festival Hafnarfjörður mætti í heimsókn og sagði okkur frá hátíðinni sem fer fram á laugardaginn á Ægi 220. Ágúst Bent Jensson og Magnús Leifur Sveinsson úr hljómsveitinni Mölvun, sem kemur fram á hátíðinni, mættu með Sveini og tóku lagið í beinni.
Hljóðbrotið var á sínum stað og fannst Gosum það í þekktari kanntinum en hlustendur fundu ekki rétta svarið.
Síðast en alls ekki síst var hinn ótrúlega skemmtilegi "Tengitími" í boði frá kl 11 til 12 þar sem Gosarnir skiptast á að tengja lögin saman.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-05-16
KARL ORGELTRIO - I?ve Seen it all ft. Raggi Bjarna og Salka So?l.
SSSÓL - Þú Ert Ekkert Betri En Ég.
Glass Animals - Creatures in Heaven.
R.E.M. - It?s The End Of The World As We....
Grace Jones - I've seen that face before.
GDRN - Háspenna.
Prins Póló, Moses Hightower - Eyja.
CREAM - I Feel Free.
Nemo - The code Sviss).
TOM ODELL - Real Love.
EMILÍANA TORRINI - Unemployed In The Summertime.
JÓNAS SIG - Hleypið mér út úr þessu partýi.
Snorri Helgason, Friðrik Dór Jónsson - Birta.
Kiriyama Family - Disaster.
Superserious - Duckface.
Ngonda, Jalen - Illusions.
Mölvun - Ótti (í beinni útsendingu)
Timberlake, Justin - Selfish.
DAÐI & GAGNAMAGNIÐ, DAÐI & GAGNAMAGNIÐ - 10 Years (Ísland Eurovision 2021).
Bill Withers - Who Is He (And What Is He to You)?.
Floni, Floni - Sárum.
BARAFLOKKURINN - Its all planned.
ROLLING STONES - Brown Sugar.
SYKUR - Reykjavík.
EMMSJÉ GAUTI - Reykjavík.
AGENT FRESCO - Dark Water.
Everlast - What it's like.
HOUSE OF PAIN - Jump Around.
Limp Bizkit - My generation.
Van Halen - Jump.
Eurythmics - Sex Crime (1984).
BANANARAMA - Cruel Summer.
ACE OF BASE - All That She Wants.
STUÐMENN - Vorið.
SADE - Never as good as the first time.
The Clash - The magnificent seven
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Mannbjörg varð út af Garðskaga í nótt eftir að strandveiðibát hvolfdi. Grunur er um að stórt flutningaskip hafi siglt á hann og því var stefnt til hafnar. Sjómaður sem bjargaði vini sínum segir þetta sinn dýrmætasta róður. Hann telur einsýnt að flutningaskipið hafi hvolft bátnum.
Ástand forsætisráðherra Slóvakíu, sem var sýnt banatilræði í gær, er stöðugt en alvarlegt. Sá sem grunaður er um verknaðinn hefur verið kærður fyrir morðtilraun.
Það gengur ekki að skera niður fé til lögreglunnar segja formaður og áheyrnarfulltrúi í fjárlaganefnd Alþingis. Krafa í fjármálaáætlun um aðhald vekur lögreglumönnum ugg.
Ný ríkisstjórn í Hollandi ætlar að segja sig frá innflytjendastefnu Evrópusambandsins og koma á ströngustu stefnu sem sett hefur verið þar. Samið var um myndun ríkisstjórnar í nótt eftir sex mánaða viðræður.
Hafrannsóknastofnun hafa aldrei borist jafn margir eldislaxar úr íslenskum laxveiðiám og á síðasta ári. Talsmaður laxveiðimanna telur að leggja ætti enn meiri áherslu á að sleppa villtum laxi til að styrkja stofninn í baráttunni við strokulax.
Herða á lög vegna notkunar rafhlaupahjóla. Lagt er til að aldurstakmark verði hækkað og skerpt á reglum þegar grunur er um ölvun.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Lovísa Rut stýrði Popplandi dagsins og dagskráin var þétt. Arnar Eggert og Andrea Jóns gerðu upp plötu vikunnar LP3 með Kiriyama Family, farið yfir nýja Iceland Airwaves tilkynningu sem lenti í morgun og dramað milli Kendrick og Drake krufið til mergjar.
BENNI HEMM HEMM & KÓR - París Norðursins.
Young Gun Silver Fox - Kids.
KUSK - Sommar.
Steely Dan - Peg.
Jónfrí & Ólafur Bjarki - Gott og vel.
Benson Boone - Beautiful Things.
OSCAR LEONE - Superstar.
Pétur Óskar - Hræddir litlir strákar.
Bear the Ant - Pyramids.
Elín Hall - Manndráp af gáleysi.
INSPECTOR SPACETIME - Hitta mig.
English Teacher - Nearly Daffodils.
THE STROKES - Last Nite.
Kiriyama Family - Disaster.
Kiriyama Family - Imagine.
Kiriyama Family - Every time you go.
Kiriyama Family - How long.
Kiriyama Family - Pleasant ship.
Svavar Knútur - Refur.
Stevens, Sufjan - Will Anybody Ever Love Me?
BJÖRG PÉ - Timabært.
Sigrún Stella - Kveðja.
Future, Kendrick Lamar - Like That (Clean).
Kendrick Lamar - Euphoria (Drake Diss).
Metro Boomin - Like That (Clean).
Drake - Family Matters (Explicit).
Kendrick Lamar - Meet the Grahams (Explicit).
Jóipé x Króli, USSEL, Króli - Í Fullri Hreinskilni.
MILKY CHANCE - Stolen Dance.
ClubDub - Augnablik (feat. Bríet).
Glass Animals - Creatures in Heaven.
Lada Sport - Næturbrölt.
TODMOBILE - Stelpurokk.
Gary Clark Jr & Stevie Wonder - What About The Children.
GDRN - Háspenna.
Hildur - Alltaf eitthvað.
Natasha Bedingfield - Unwritten.
The Vaccines - Heartbreak Kid.
Overmono & The Streets - Turn The Page.
Artemas - I like the way you kiss me.
Jungle - Heavy, California.
Una Torfadóttir & Sigurður Guðmundsson - Þetta líf er allt í læ.
Prins Póló - Niðrá strönd.
Wings - Arrow Through Me.
Þegar fyrsta hluta úthlutunar leikskólaplássa í Reykjavík lauk föstudaginn 10. maí höfðu foreldrar rúmlega 1700 barna fengið boð og þegið vistun í borgarrekna leikskóla.
Hildur Lilja Jónsdóttir, fagstjóri leikskóla í Austurmiðstöð sem einnig er í innritunarteymi skóla- og frístundasviðs kemur til okkar á eftir og fer yfir stöðuna í þessum málaflokki með okkur.
Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi verður síðan hjá okkur í seinni hluta þáttar á grillinu eins og við höfum kosið að kalla þennan dagskrárlið. Við spyrjum Höllu spjörunum úr og freistum þess að kynnast henni betur.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO telur að akstur vegna farsímanotkunar sé einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa í heiminum.
Allt bendir til þess að fólk sem notar síma við akstur sé fjórum sinnum líklegra til að lenda í slysi. Þá er tuttugu og þrisvar sinnum líklegra að fólk sem les og eða skrifar skilaboð meðan á akstri lendi í slysi. Nú hefur Samgöngustofa í samvinnu við tryggingarfélagið Sjóvá ákveðið að hrinda af stað herferð gegn farsímanotkun sem ber yfirskriftina "EKKI TAKA SKJÁÁHÆTTUNA" Það er hættulegt að tala í síma undir stýri. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu kemur til okkar.
Íbúar í Ölfusi eru að fara að kjósa samhliða forsetakosninunum um hvort þeir vilji breyti á deiluskipulagi þannig að mölunarverskmiðja Hedelberg geti risið í næsta nágrenni við Þorlákshöfn. Það er búið að boða til íbúðarfundar í kvöld og hingað er komin Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar Ölfuss.
Neytendasamtökin hafa varað við nýstárlegum netsvindlum tengdum rafrænum skilríkjum. Framkvæmdastjóri samtakanna, Brynhildur Pétursdóttir, kemur til okkar.
Kosið verður um aðal- og deiliskipulagstillögur vegna mölunarverksmiðju og hafnar sem Heidelberg hyggst reisa við Þorlákshöfn. Ása Berglind Hjálmarsdóttir bæjarfulltrúi í minnihlutanum kom til okkar í gær og ræddi þessi mál frá sjónarhorni minnihlutans við okkur og á eftir kemur til okkar Þorsteinn Víglundsson forstjóri Hornsteins og talsmaður Heidelberg.
Ísland er ekki með sendiráð á Spáni. Þessu vilja Píratar breyta. Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Pírata fer yfir þörfina á íslensku sendiráði í Madríd.
Stöð 2 heldur kappræður í kvöld í opinni dagskrá með sex efstu forsetaframbjóðendunum. Við ætlum að ræða við Erlu Björg Gunnarsdóttur, fréttastjóra Stöðvar 2.
Arnar Magnússon strandveiðisjómaður sem kom skipverja bátsins sem sökk í nótt til bjargar, segir liggja í augum uppi að flutningaskip hafi klesst á bátinn, þetta kom fram í áhugaverðu viðtali við Arnar á Vísi fyrr í dag. Hann segir yndislegt að félagi hans til fjörutíu ára hafi komist lífs af því það fer ekki alltaf svo vel. Arnar er á línunni.
Kvöldfréttir útvarps
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir fjármálaáætlun stjórnvalda til ársins 2029 of almenna og erfitt að sjá hvað í henni felst. Honum líst ekki á þær aðhaldskröfur sem gerðar eru til embættis hans.
Robert Fico, forsætisráðherra Slóvakíu, sem særðist lífhættulega í skotárás í gær, er með meðvitund og fær um að tala, en mjög máttfarinn. Þetta sagði Peter Pelligrini, bandamaður Ficos og verðandi forseti landsins.
Dómsmálaráðherra segir breytingar á útlendingalögum nauðsynlegar til að draga úr kostnaði og fækka umsóknum um alþjóðlega vernd. Önnur umræða um frumvarpið hófst á Alþingi í dag.
Skipstjóri og tveir stýrimenn flutningaskipsins Longdawn hafa verið handteknir vegna gruns um að hafa siglt á strandveiðibát út af Garðskaga í nótt. Ekki er talið að um ásetning hafi verið að ræða.
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur til rannsóknar ofbeldisbrot manns gegn konu fyrir utan Götubarinn í miðbæ Akureyrar.
Suður-Afríka fer fram á það við Alþjóðadómstólinn í Haag að hann krefjist þess að Ísrael láti af hernaðaðgerðum. Ísraelar segja engan fót fyrir ásökunum Suður Afríku.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Alexander Kristjánsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
16. maí 2024
Viðtöl Spegilsins við frambjóðendur til embættis forseta Íslands halda áfram. Í þessum þætti ræðir Freyr Gígja Gunnarsson við Höllu Hrund Logadóttur.
Utanríkisráðherrar Íslands og þriggja Evrópusambandsríkja; Eistlands, Lettlands og Litáens, héldu til Georgíu í gær til að ræða við ráðamenn úr stjórn og stjórnarandstöðu og sýna samstöðu með þeim sem mótmælt hafa umdeildum lögum sem Georgíuþing samþykkti í vikunni. Rætt er við Björn Malmquist, fréttaritara RÚV í Brussel, um afstöðu ESB til málsins og líkindi ástandsins í Georgíu nú með ástandinu í Úkraínu 2014.
Þingvallanefnd hefur forkaupsrétt að öllum sumarhúsum innan þjóðgarðsins sem fara á markað. Oftast eru þetta gömul og illa farin hús sem flest eru fjarlægð og ekkert byggt í staðinn. Það vakti því nokkra athygli þegar nefndin ákvað síðasta sumar að nýta forkaupsrétt að einu elsta sumarhúsi þjóðgarðsins, en rífa það ekki - að minnsta kosti ekki strax. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Einar Ágúst Sæmundsen þjóðgarðsvörð um hugmyndir sem uppi eru um að opna aftur kaffihús í þjóðgarðinum.
Umsjónarmaður: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred
Fréttastofa RÚV.
Farið er yfir það nýjasta og ferskasta sem er að gerast í grasrót tónlistarsenunnar á Íslandi. Þátturinn leggur áherslu á vandaða umfjöllun um senuna og fólkið sem hana byggir í bland við nýútgefna tónlist.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson og Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack.
Torfi Tómasson (TORFI) góðvinur þáttarins kom í spjall og hlustuðum við á tónleika hans frá því 16. apríl á Upprásinni. Ný grasrótartónlist var spiluð eins og venjan er og svo kom Sigríður Langdal og tók við stjórnvölunum í Ólátagarði og spilaði mikið af sinni uppáhalds grasrótartónlist í lok þáttar.
Ástin dugir - Páll Óskar & Unun
It's Like That - Run DMC
Sommar - KUSK
Moon - Freyr
Amor Vincit Omnia - Amor Vincti Omnia
Ertu góð? - Ísar & Flosi
Hours - Lón
Þekki þig ekki lengur - DayBright
Clogging - Tófa
Perlin worm - Sideproject
Eitt (Upprásin 16. apríl) - Torfi
Eiturlyf (Upprásin 16. apríl) - Torfi
Framleitt, auglýst, selt (Upprásin 16. apríl) - Torfi
Örmagna (Upprásin 16. apríl) - Torfi
Ofurhægt (Upprásin 16. apríl) - Torfi
Eign (Upprásin 16. apríl) - Torfi
E-Ð (Upprásin 16. apríl) - Torfi
Hrifnastur (Upprásin 16. apríl) - Torfi
Silfrað frelsi (Upprásin 16. apríl) - Torfi
Mánaðarmót (Upprásin 16. apríl) - Torfi
Heaven or Las Vegas - Cocteau Twins
Jailbird - Primal Scream
Life During Wartime - Talking Heads
Sigríður Langdal lagalisti:
Ef þú vilt gráta - Iðunn Einarsdóttir
How Much Would It Change - K.óla
Ég skal bíða eftir þér - Gróa
Yfir skýin - Lúpína
Raflost - Sucks to be you, Nigel
Hvað veist þú um lífið? - HáRún
Project 12 - Lúkas