
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30


Gestir úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Sigurlaug M. Jónasdóttir.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.


Veðurstofa Íslands.

Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin eru lög þar sem sól og sumar eru í forgrunni og hefst þátturinn á laginu Sólin er komin með Mugison. Síðan syngja Karlotta Sigurðardóttir og Sigurlaug Jónsdóttir lagið Sumar og sól. Bjarni Arason tekur við og flytur lag sitt Þegar sólin sýnir lit. Guðrún Gunnarsdóttir og Latínudeildin flytja lagið Sumartíð og Hreimur Örn Heimisson syngur eigið lag sem heitir Sólin er sest. Sigga Eyrún og Karl Olgeirsson flytja útfærslu sína á laginu Í dag skein sól og Sigurður Guðmundsson syngur eigið lag sem heitir Þar sem sólin skín. Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar flytur lagið Sumarfrí og Jóhann Sigurðarson syngur Sól rís, sól sest. Nylon flytur lagið Síðasta sumar og Eva Ásrún Albertsdóttir syngur Sumarfrí eftir Geirmund Valtýsson. Umsjón: Jónatan Garðarsson.


Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Þularkynnt tónlist

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón með Hljóðrás ævi minnar hefur Helga Rakel Rafnsdóttir.

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum
Suite en concert pour violoncello (1965) eftir André Jolivet. Erling Blöndal Bengtsson leikur einleik á selló.
Verkið er í fimm þáttum:
1. Improvisation
2. Ballade
3. Air
4. Sérénade
5. Sonate
Stúdíóupptaka Ríkisútvarpsins frá 1970, Tage Ammendrup stjórnaði upptökunni.
Sónata nr. 3 í Es dúr op. 12 nr. 3 eftir Ludwig van Beethoven. Isabelle Faust leikur á fiðlu og Alexander Melnikov á píanó.
Verkið er í þremur þáttum:
I. Allegro con spirito
II. Adagio con molt'espressione
III. Rondo (allegro molto)
Hljóðritunin kom út 2009.
Ariettes oubliées (1885-7), söngljóðaflokkur eftir Claude Debussy. Ljóðin orti Paul Verlaine.
Þóra Einarsdóttir sópran syngur, Alexander Schmalcz leikur á píanó.
Ljóðin eru eftirfarandi:
C´est l´extase langoureuse
Il pleure dans mon coeur
L´ombre des arbres
Chevaux de bois
Green
Spleen
Stútíóupptaka gerð 13. október 2008, tónmeistari: Bjarni Rúnar Bjarnason; hljóðmeistari: Hreinn Valdimarsson; tæknimaður: Páll Sveinn Guðmundsson.
4 abstraktsjónir eftir Magnús Blöndal Jóhannsson. Gísli Magnússon píanóleikari flytur.

Enginn módernismi án lesbía fjallar um hin oft gleymdu áhrif sem bandarísku lesbíurnar Gertrude Stein og Sylvia Beach höfðu á mótun módernismans í París snemma á 20. öld.
Umsjón: Tinna Björk Ómarsdóttir.
Sylvia Beach var bóksali sem að starfrækti bókabúðina sögufrægu Shakespeare and Company en bókabúðin var samkomustaður framúrstefnufólksins í París. Hún var fyrsti útgefandi móderníska meistaraverksins Ódysseifur eftir James Joyce sem að kom út árið 1922 og markaði tímamót í bókmenntasögunni.
Umsjón: Tinna Björk Ómarsdóttir.

Útvarpsfréttir.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.


Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Nokkur vel valin lög

frá Veðurstofu Íslands

Dánarfregnir.
Hljóðritun frá tónleikum Marc Bouchkovs fiðluleikara og píanóleikarans Julien Quentins á Verbier-hátíðinni í Sviss, 31. júlí sl.
Til heiðurs Jascha Heifetz, er yfirskrift tónleikanna og samanstendur efnisskráin af virtúósískum smáverkum í anda fiðluleikarans fræga.
Á meðal höfunda eru Johann Sebastian Bach, Claude Debussy, Camille Saint-Saëns, Isaac Albéniz, Sergej Rakhmanínov og George Gershwin.
Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.

Umsjónarfólk segir frá tímabili í ævi sinni og leikur tónlist sem endurspeglar tímann eða atburði sem sagt er frá.
Umsjón með Hljóðrás ævi minnar hefur Helga Rakel Rafnsdóttir.

Skáldsaga eftir norska höfundinn Tarjei Vesaas.
Heimir Pálsson þýddi, en lesari er Ingrid Jónsdóttir.
Sagan er samin um 1930. Hún segir frá fólki á býlinu Framnesi. Þar býr Ambos, rekur stóran hestabúgarð og ekur með ferðamenn um héraðið. Svörtu hestarnir hans eru honum kærari en flest annað. Ambros var ekkjumaður og á uppkomin börn, en hefur fyrir skömmu kvænst í annað sinn, ungri konu, Lísu. Þau eiga tvö ung börn, en Lísa er annarar gerðar en Ambros og samlagast ekki lífinu á bænum, yfir hjónabandinu hvílir skuggi sem markar allt fólkið á Framnesi.
Tarjei Vesaas var einn af helstu höfundum Norðmanna á tuttugustu öld. Hann fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir Klakahöllina, sem einnig hefur komið út í íslenskri þýðingu.
Sagan er 18 lestrar.


frá Veðurstofu Íslands

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30


Létt spjall og lögin við vinnuna.



Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.

Útvarpsfréttir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.



Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.


Fréttir

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Léttir tónar óma úr eldhúsinu.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.


Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.

Tónlist að hætti hússins.