18:00
Kvöldfréttir útvarps
Gengi krónunnar, Íranar hóta hefndum, sviðslistir og veðurblíða.

Fréttir

Fréttir

Einn stofnenda Áfram Íslands segir gengi íslensku krónunnar vera eins konar ventil í íslensku hagkerfi. Framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar segir það að fella gengi krónunnar ekkert annað en launalækkun fyrir alla nema þá tekjuhæstu.

Ungir Akureyringar standa að nýrri sviðlistahátíð þar um helgina. Skipuleggjendur segjast bjóða upp á eitthvað fyrir alla.

Mojtaba Khamenei, æðstiklerkur Írans, sór þess eið í dag að hefna föður síns og forvera í embætti. Bandaríkjaforseti hafði áður hótað að tortíma Íran ef honum yrði sýnt banatilræði.

Einmunablíða er á Austurlandi. Hitinn á Hallormsstað fór upp í 25 stig í dag.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,