14:03
Á tónsviðinu
Þeldökkir tónlistarmenn í sígildri tónlist 18. og 19. aldar

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Seinni tíma rannsóknir hafa leitt mönnum fyrir sjónir að saga sígildrar tónlistar Vesturlanda á 18. öd 19. öld er ekki jafn alhvít og talið var, í henni má einnig finna þeldökka tónsmiði og tónlistarmenn. Í þessum þætti verður fjallað um nokkra þeirra. Það eru Rachel Baptist, svört sópransöngkona í Dublin um miðbik 18. aldar, Ignatius Sancho, tónsmiður sem fæddist um borð í þrælaskipi, Joseph Boulogne, Chevalier de Saint Georges, sem var tónskáld og fiðluleikari í þjónustu Loðvíks XVI Frakkakonungs og Maríu Antoinettu drottningar, og George Bridgetower fiðluleikari, en Ludwig van Beethoven tileinkaði honum fiðlusónötu sína nr.9 í A-dúr. Eftir missætti þeirra á milli breytti Beethoven tileinkuninni og tileinkaði öðrum fiðluleikara, Rodolphe Kreutzer, verkið. Sónatan varð því þekkt í tónlistarsögunni sem Kreutzer-sónatan. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Pétur Eggertsson.

Er aðgengilegt til 29. júlí 2026.
Lengd: 53 mín.
,