12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 10. apríl 2026

Útvarpsfréttir.

Ríkisstjórnin hefur kynnt tímabundnar efnahagsaðgerðir til að hemja verðbólgu. Virðisaukaskattur á eldsneyti lækkar úr 24 prósentum í 11 prósent, vöktun á verðlagningu verður aukin og hleðslustöðvum fjölgað. Aðgerðirnar taka gildi 1. maí og gilda til 31. ágúst.

Dánartilkynning um lifandi mann birtist í Morgunblaðinu í dag. Blaðið hefur beðist afsökunar og maðurinn segir konu, sem hefur verið kærð fyrir umsáturseinelti, standa að baki tilkynningunni. Lögreglan á Suðurnesjum tilkynnti laust fyrir hádegi um að einn hefði verið handtekinn í þágu rannsóknar málsins.

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga rann út á hádegi. 11 framboð í Reykjavík hafa skilað inn lista.

Ísraelar hafa drepið eða sært sex hundruð börn í Líbanon síðan 2. mars. Í tilkynningu minnir Unicef á mikilvægi þess að virða alþjóðalög. Vernda eigi almenna borgara og þar með börn.

Gullverðlaunahafi frá Vetrarólympíuleikunum og leikari úr Heated Rivalry fara með stór hlutverk í tónlistarmyndbandi Laufeyjar sem kemur út í dag.

Lundinn er kominn til landsins. Forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands segir að honum stafi lítil hætta af snjóþyngslum.

Þrátt fyrir tap gegn Færeyjum á miðvikudag er íslenska kvennalandsliðið í handbolta enn með sæti á Evrópumótinu í desember í eigin höndum. Liðið leikur úrslitaleik um EM-sæti gegn Portúgal á sunnudag.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,