07:03
Morgunvaktin
Geimferðir, kosningar í Ungverjalandi og Bernstein

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Við fjölluðum um Artemis leiðangurinn. Þetta einstaka flug umhverfis tunglið, Orion geimfarið með geimfarana fjóra innanborðs, er væntanlegt til jarðar í dag. Það verður lent á Kyrrahafinu. Ari Kristinn Jónsson, fyrrverandi starfsmaður bandarísku geimferðastofnunarinnar, kom til okkar.

Björn Malmquist fréttamaður er kominn til Búdapest og fylgist þar með lokametrum kosningabaráttunnar í Ungverjalandi og kosningunum á sunnudag. Hann fór yfir helstu tíðindi.

Magnús Lyngdal tók fyrir Bandaríkjamanninn Leonard Bernstein sem bæði samdi tónverk og stjórnaði hljómsveitum.

Tónlist:

Björgvin Halldórsson - Ég lifi í draumi.

Heiða Árnadóttir - Tunglið og ég.

Gunnar Gunnarsson - Moon river.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,