18:00
Kvöldfréttir útvarps
Fleiri sektaðir fyrir símanotkun undir stýri

Fréttir

Fréttir

Notkun farsíma og snjalltækja í akstri hefur aukist síðustu ár. Yfir þrettán hundruð ökumenn voru kærðir fyrir þessi umferðarlagabrot hér á landi í fyrra.

Hringvegurinn um Mývatns- og Möðrudalsöræfi er lokaður vegna ófærðar og illviðris. Sama gildir um Jökuldal, Fagradal og Fjarðarheiði.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur beðið þingið um að stórauka fjárveitingar til varnarmála. Í staðinn leggur hann til niðurskurð til loftslags-, húsnæðis- og menntamála.

Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður hefst á Ísafirði í dag. Þar koma fram jafnt nýjar sveitir og sumir vinsælustu tónlistarmenn landsins.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,