
Bæn og hugleiðing að morgni dags.
Séra Margrét Lilja Vilmundardóttir flytur.
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Fjallað var um nýafstaðnar forsetakosningar. Rætt var við Eirík Bergmann stjórnmálafræðing um kjör Höllu Tómasdóttur og kosningabaráttuna.
Björn Malmquist sagði frá Evrópuþingskosningunum sem hefjast á fimmtudag og þingkosningum í Belgíu á sunnudag. Einnig sagði hann frá fundi Úkraínuforseta með leiðtogum norrænu ríkjanna í Stokkhólmi á föstudag.
Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, var á fimmtudaginn fundinn sekur í dómsmáli sem höfðað var gegn honum. Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari ræddi dóminn og möguleg áhrif hans á Trump sem sækist eftir forsetakjöri á nýjan leik.
Tónlist:
Svo björt og skær - Kvartett Reynis Sigurðssonar,
My foolish heart - Laila Dalseth,
Suddenly autumn - Sunna Gunnlaugsdóttir,
50 ways to leave your lover - Paul Simon.

Útvarpsfréttir.

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30

Útvarpsfréttir.

Morgunleikfimi með Halldóru Björnsdóttur.

Útvarpsfréttir.

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Söngvar um hafið, sjómennsku og siglingar í eiginlegum og óeiginlegum skilningi.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Lögin sem hljóma í þættinum eru Einn á bát með hljómsveitinni Piparkorn, Sjóarinn sem Sigurður Dagbjartsson syngur, Konan og hafið sem Guðný og Stefán flytja saman, Hafið eða fjöllin í túlkun Gísla Ægis Ágústssonar og félaga, Ölduslóð með Svavari Knúti, Hafið er svart og Hetjur hafsins með Jónasi Sig og Lúðrasveit Þorlákshafnar og Í faðmi hafsins með Írisi Guðmundsdóttur.

Útvarpsfréttir.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Selvatn, í Miðdalslandi í Mosfellsbæ, er sennilega ekki þekktasta vatn Höfuðborgarsvæðisins en þar eru þó nokkuð mörg sumarhús og þar er myndlistarkonan Erla Axels með vinnustofu í Listaseli með góðu útsýni bæði yfir vatnið og Miðdalsheiðina. Erla opnaði sýningu í þessu fallega umhverfi um síðustu helgi og aflvaki myndanna er upplifanir og minningar úr náttúrunni við Selvatn. Verkin vann hún síðastliðinn tvö ár og stendur sýningin í stuttan tíma, eða til 9.júní. Við heimsóttum Erlu Axels í Listaselinu við Selvatn.
Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Vinkill dagsins er borinn við forsetakosningar, sjómannadag og sjóhunda. Minnst er á afleitar veðurhorfur á Íslandi og líka fjallað um fellibylinn Remal sem herjaði á Bangladesh fyrir skömmu en þjóðsögur þaðan eru mjög áhugaverðar og við fengum stuttan úrdrátt úr einni slíkri.
Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Rósa Guðný Arnardóttir, háskólanemi og crossfit þjálfari. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Rósa talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Recursion eftir Blake Crouch,
Dune e. Frank Herbert
Utopia for Realists e. Rutger Bregman
Eclipse e. Stephanie Meyer
Tónlist í þættinum í dag:
Fram í heiðanna ró / GÓSS (Daniel E. Kelly, texti Friðrik A. Friðriksson)
Allt í gúddí / Ólöf Arnalds (Ólöf Arnalds)
Lífsgleði / Pónik (Jean & Vanguard, texti Þorvaldur Halldórsson og Erlendur Svavarsson)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Dánarfregnir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.

Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Umsjón hefur Kristín Berta Sigurðardóttir heilsunuddari og eigandi Birtu Heilsu.

Íslenskt lag eða tónverk.
Útvarpsfréttir.
Rúmlega fjögur hundruð misstu vinnuna í sex hópuppsögnum í maí. Vinnumálastofnun hefur ekki verið tilkynnt um svo margar uppsagnir síðan í byrjun covid-faraldursins. Forstjóri stofnunarinnar telur það þó ekki vera til marks um samdrátt á vinnumarkaði.
Vegagerðin býr sig undir að sinna vetrarþjónustu í hríðarveðri á Norður- og Austurlandi í vikunni. Norðvestanstormur gengur inn á landið norðaustanvert í kvöld og stendur óvenju lengi.
Forsætisráðherra segir umhugsunarvert að frambjóðendur í forsetakosningunum hafi gefið í skyn að embættið sé valdaembætti. Kosningabaráttan hafi verið skrautleg á köflum.
Enn gýs af sama krafti við Sundhnúksgíga. Vel er fylgst með hrauntjörnum sunnan við gossprunguna.
Félagið Ísland-Palestína hefur boðað til mótmæla við Alþingi í dag. Eftir ríkisstjórnarfund á föstudaginn beitti lögregla piparúða gegn mótmælendum. Aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, neitar því að mótmælin hafi verið friðsöm.
Lögreglan í Hafnarfirði hefur enn ekki fundið mann sem hefur veist að börnum í bænum. Margar ábendingar hafa borist.
Claudia Sheinbaum var í gær kosin forseti í Mexikó, fyrst kvenna. Kosið var í skugga mikillar ofbeldisöldu. Tuttugu frambjóðendur til sveitarstjórna voru drepnir.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Daglegur fréttaskýringaþáttur þar sem stór og lítil fréttamál eru matreidd á einfaldan hátt.
Kosningabaráttan um Bessastaði var háð í fjölmiðlum, úti á meðal fólks og á samfélagsmiðlum. Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti Íslands var áberandi á Tik Tok og fleiri samfélagsmiðlum auk þess sem framboðið rak sérstaka kosningamiðstöð fyrir ungt fólk.
Auður Ína Björnsdóttir, nemi í sálfræði og dóttir Höllu Tómasdóttur forseta Íslands og Björns Skúlasonar, tók virkan þátt í kosningabaráttunni auk bróður síns Tómasar Bjarts, en systkinin stunda háskólanám í New York.
Eyrún Magnúsdóttir hitti Auði Ínu á heimili fjölskyldunnar á Klapparstíg, skömmu eftir hið klassíska ávarp nýs forseta af svölunum heima. Hún segir áherslu hafa verið lagða á það að skapa stemningu fyrir kosningunum hjá ungu fólki.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Ársskýrsla Unicef kom út fyrir skömmu og við ætlum að ræða við Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra samtakanna. Það hefur enginn farið varhluta af stöðu mála fyrir botni Miðjarðarhafs þar sem margir þjást og börn mest af öllum. Varnarlaus börn eru fórnarlömb í stríði og þurfa að reiða sig á hjálp sem því miður hefur ekki getað borist nema af skornum skammti. Þúsundir barna hafa verið drepin og særst í átökum og vinnur Unicef hörðum höndum að því að hjálpa börnum og hefur ítrekað krafist vopnahlés. Einnig þurfum við að huga að réttindum barna á Íslandi.
Við fjöllum líka um mál sem hefur skekið hafnarfjörð síðastliðnar vikur, maður eða menn hafa ítrekað veist að börnum í bænum og foreldrar og börn uggandi, reiði og múgæsingur á samfélagsmiðlum virðist hafa náð nýjum hæðum eftir að mynd var birt af meintum árásarmanni - fólk steig fram undir nafni og hótaði manninum ofbeldi og jafnvel lífláti. Við ræðum þetta við Margréti Valdimarsdóttur dósent í félags- og afbrotafræði.
Við heimsækjum svo þjóðskjalasafnið í lok þáttar - heyrum þar af kjörum vinnuhjúa á nítjándu öld.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir.
Tónlist:
POLLAPÖNK - Enga fordóma (Söngvakeppnin 2014).

Útvarpsfréttir.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Umsjón: Rakel Edda Guðmundsdóttir
Tónlistin í þættinum:
Sönghópurinn Gríma syngur Hygg að og herm hið sanna, þjóðlagaútsetningu eftir Hildigunni Rúnarsdóttur. Textinn er sóttur í 9. og 13. erindi Passíusálma Hallgríms Péturssonar.
Skólakór Kárnsness syngur undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur, Salutatio Mariae eftir Jón Nordal. Textinn er úr íslensku kvæði frá 15. öld.
Björn Ólafsson leikur Fiðlusónötu frá 1952 eftir Jón Nordal. Tónskáldið leikur með á píanó. Hljóðritað 1959. Verkið er í 3 þáttum: Allegro moderato, Adagio og Allegretto.
Anna Guðný Guðmundsdóttir og Snorri Sigfús Birgisson leika Alberta landscape fyrir tvö píanó eftir Atla Heimi Sveinsson.
Sinfóníuhljómsveit Breska útvarpsins flytur tónaljóðið Galdravatnið, Volshebnoye ozero (e. Enchanted lake) op. 62 eftir Anatoly Konstantinovitsj Lyadov. Alexander Titov stjórnar.
Ásgerður Júníusdóttir syngur Vort líf, lag eftir Jórunni Viðar, ljóð eftir Stein Steinarr. Útsetningin er eftir Agnar Má Magnússon og Ásgerði Júníusdóttur. Með Ásgerði leika Agnar Már Magnússon á píanó, Matthías Hemstock á trommur og slagverk og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-06-03
Sönghópurinn Gríma - Hygg að og herm hið sanna.
Skólakór Kársness - Salutatio Mariae.
Jón Nordal, Björn Ólafsson Konsertmeistari - Fiðlusónata (1952) : Allegro moderato.
Jón Nordal, Björn Ólafsson Konsertmeistari - Fiðlusónata (1952) : Adagio.
Jón Nordal, Björn Ólafsson Konsertmeistari - Fiðlusónata (1952) : Allegretto.
Anna Guðný Guðmundsdóttir, Snorri Sigfús Birgisson - Alberta landscape fyrir tvö píanó.
BBC Symphony Orchestra - The enchanted lake.
Ásgerður Júníusdóttir - Vort líf.

Útvarpsfréttir.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Sonurinn heitir nýútkomin þýðing frá Uglu úgáfu. Þetta er stutt en áhrifamikil skáldævisaga eftir franska tónlistarstjórann og rithöfundinn Michel Rostain sem fjallar um eitt hræðilegasta áfall sem hugsast getur fyrir foreldri, að missa barn. Bókin hreppti hin virtu Goncourt-verðlaun árið 2011 og varð metsölubók í Frakklandi auk þess sem hún hefur verið þýdd á ýmis tungumál. Við ræðum við þýðanda verksins, Friðrik Rafnsson.
Alphonse Daudet var einn þekktasti rithöfundur Frakka á ofanverðri nítjándu öld þótt. Í landi sársaukans er afar sérstök bók, einskonar dagbókaskrif höfundar sem gefin var út að honum látnum. Þar hugleiðir Daudet dauðann og áralanga baráttu við banvænan sjúkdóm en um leið lífið sjálft. Færslurnar voru hugsanlega aðeins efniviður í meira unninn skáldskap en stendur eftir sem áður sem merkileg samtímaheimild og hugleiðingar um tilveruna.
Joanna Rubin Dranger frá Svíþjóð hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2023 fyrir myndaskáldsöguna Ihågkom oss till liv. Dranger var stödd hér á landi í byrjun maí og var haldinn viðburður í Norræna húsinu þar sem Tinna Ásgeirsdóttir tók við hana viðtal. Við heyrum glefsur úr því viðtali í þættinum.
Viðmælendur: Friðrik Rafnsson og Joanna Rubin Dranger.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Við hefjum þáttinn á því að fara niður að Tjörn, þar sem þær Agnes Ársæls og Anna Andrea Winther sýna keramikskúlptúra í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Verkið, sem þær kalla Milli mála er hluti af stærra rannsóknarverkefni þar sem þær rannsaka samband manns við umhverfi sitt og stigveldið sem birtist í fagurfræði og framkomu okkar við dýr. Listamennirnir segjast pínu hræddir um afdrif verkanna við Tjörnina, svona í ljósi sögunnar, en hvað sem gerist verði væntanlegar uppákomur alltaf hluti af verkinu sjálfu. Það vildi einmitt til að í miðju viðtali var reynt að stela hluta verksins svo óhætt er að segja að það sé í stöðugri vinnslu.
Freyja Þórsdóttir heimspekingur verður einnig með okkur í þætti dagsins. Í dag fjallar Freyja um gildi og siðferðilegt hugrekki, meðal annars með vísun í Rosu Parks, Audre Lorde og atburði í Reykjavík síðastliðin föstudag þar sem lögreglan beitti valdi gegn friðsömum mótmælendum.
Síðastliðinn fimmtudag hélt breski menningarráðgjafinn Steven Hadley erindi í Norræna húsinu á vegum Háskólans á Bifröst. Erindið kallaði hann: Líkt og kynlíf og súkkulaði? - Menning, lýðræði og endalok listanna. Spurningar sem þar voru til grundavallar voru meðal annars: Hvernig hefur gengið að lýðræðisvæða listirnar? Er það eftirsóknarvert í sjálfu sér, eða er nóg að við segjum að allir hafi aðgang? Hafa allir jafnan aðgang að listum og menningu? Og hvað myndi það þýða ef svo væri?
Við ræðum við Stephen Hadley í þættinum.

Útvarpsfréttir.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Lögregla beitti piparúða á mótmælendur í Skuggasundi þann 31. maí síðastliðinn. Mótmælendur höfðu safnast saman fyrir utan ríkisstjórnarfund til að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart Palestínu. Við heyrum frá þeim sem voru á staðnum.
Lesari: Sólveig Hauksdóttir.
Tónlist í þættinum er eftir Víf Ásdísar Svansbur, hljóðmaskínu, af plötunni Hljóðmaskína.

Fréttir
Kvöldfréttir útvarps
Þingflokkur Vinstri grænna myndi þurrkast út, væri kosið nú, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Samfylkingin mælist enn stærsti flokkurinn, með 30% fylgi.
Óvenju síðbúnu og langvinnu hreti er spáð í vikunni. Appelsínugular veðurviðvaranir gilda frá Ströndum, Vesturlandi og Vík í Mýrdal austur yfir landið vegna norðvestanstorms og hríðar.
Héraðsdómur Reykjaness sýknaði í dag Kolbein Sigþórsson, fyrrverandi knattspyrnumann, af ákæru fyrir kynferðisbrot gegn stúlkubarni.
Nigel Farage, nýr leiðtogi Umbótaflokks Bretlands og einn helsti leiðtogi Brexit-sinna, staðfesti í dag framboð sitt í komandi þingkosningum.
Íslenskir snyrtivöruframleiðendur þurfa ekki vottun til að markaðssetja vöru sína sem lífræna. Herða þarf lagaumhverfið um ört vaxandi markað, segir verkefnastjóri Lífræns Íslands.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Hve mikinn þátt í sigri Höllu Tómasdóttur átti sókn hennar á nýjum miðlum þar sem sérstaklega var höfðað til yngri kjósenda?
Breytingar á íslensku samfélagi endurspeglast í fangelsum landsins, í fyrra sættu 242 frá 40 löndum gæsluvarðhaldi og hafa aldrei verið fleiri. Fangelsismálastjóri segir þróun samfélagsins endurspeglast í fangelsunum og það þarf að hlúa betur að hinsegin nemendum í smærri byggðum landsins segja talsmenn Hinsegin lífsgæða.
Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla ræðir við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum.
Umsjón: Embla Bachmann
Í þessum þætti af Hvað ertu að lesa? skoða Embla og Karitas þær bækur sem tilnefndar eru til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs: Skrímslavinafélagið og Hrím. Myndhöfundurinn Sólrún Ylfa og rithöfundurinn Tómas Zoëga spjalla um Skrímslavinafélagið og við heyrum brot úr viðtali Jóhannesar Ólafssonar við Hildi Knútsdóttur um Hrím. Bókaormurinn Magnús Máni kíkir líka við.

Veðurstofa Íslands.

Dánarfregnir.
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.
Netfang: [email protected]
Ársskýrsla Unicef kom út fyrir skömmu og við ætlum að ræða við Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra samtakanna. Það hefur enginn farið varhluta af stöðu mála fyrir botni Miðjarðarhafs þar sem margir þjást og börn mest af öllum. Varnarlaus börn eru fórnarlömb í stríði og þurfa að reiða sig á hjálp sem því miður hefur ekki getað borist nema af skornum skammti. Þúsundir barna hafa verið drepin og særst í átökum og vinnur Unicef hörðum höndum að því að hjálpa börnum og hefur ítrekað krafist vopnahlés. Einnig þurfum við að huga að réttindum barna á Íslandi.
Við fjöllum líka um mál sem hefur skekið hafnarfjörð síðastliðnar vikur, maður eða menn hafa ítrekað veist að börnum í bænum og foreldrar og börn uggandi, reiði og múgæsingur á samfélagsmiðlum virðist hafa náð nýjum hæðum eftir að mynd var birt af meintum árásarmanni - fólk steig fram undir nafni og hótaði manninum ofbeldi og jafnvel lífláti. Við ræðum þetta við Margréti Valdimarsdóttur dósent í félags- og afbrotafræði.
Við heimsækjum svo þjóðskjalasafnið í lok þáttar - heyrum þar af kjörum vinnuhjúa á nítjándu öld.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Lísa Pálsdóttir.
Tónlist:
POLLAPÖNK - Enga fordóma (Söngvakeppnin 2014).

Heimildaskáldsaga eftir Björn Th. Björnsson. Guðmundur Ólafsson les.
Sagan gerist í Þingvallasveit á fyrri hluta nítjándu aldar, áður en tekið var að upphefja Þingvöll sem mesta helgistað landsins af skáldum og þjóðskörungum. Þá var Snorrabúð stekkur, eins og Jónas kvað.
Páll Þorláksson var prestur í Þingvallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé allt samkvæmt kristilegum skikk á bænum Skógarkoti þar sem Kristján Magnússon fer með húsbóndavald. Ljóst þykir að eiginkona Kristjáns getur ekki verið móðir allra þeirra barna sem hann feðrar í sínum ranni. Hefjast út af þessu nokkrar væringar milli hins knáa húsbónda og Þingvallaklerks og má hið geistlega vald sín lengi vel næsta lítils í þeim viðskiptum.

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Selvatn, í Miðdalslandi í Mosfellsbæ, er sennilega ekki þekktasta vatn Höfuðborgarsvæðisins en þar eru þó nokkuð mörg sumarhús og þar er myndlistarkonan Erla Axels með vinnustofu í Listaseli með góðu útsýni bæði yfir vatnið og Miðdalsheiðina. Erla opnaði sýningu í þessu fallega umhverfi um síðustu helgi og aflvaki myndanna er upplifanir og minningar úr náttúrunni við Selvatn. Verkin vann hún síðastliðinn tvö ár og stendur sýningin í stuttan tíma, eða til 9.júní. Við heimsóttum Erlu Axels í Listaselinu við Selvatn.
Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Vinkill dagsins er borinn við forsetakosningar, sjómannadag og sjóhunda. Minnst er á afleitar veðurhorfur á Íslandi og líka fjallað um fellibylinn Remal sem herjaði á Bangladesh fyrir skömmu en þjóðsögur þaðan eru mjög áhugaverðar og við fengum stuttan úrdrátt úr einni slíkri.
Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Rósa Guðný Arnardóttir, háskólanemi og crossfit þjálfari. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Rósa talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Recursion eftir Blake Crouch,
Dune e. Frank Herbert
Utopia for Realists e. Rutger Bregman
Eclipse e. Stephanie Meyer
Tónlist í þættinum í dag:
Fram í heiðanna ró / GÓSS (Daniel E. Kelly, texti Friðrik A. Friðriksson)
Allt í gúddí / Ólöf Arnalds (Ólöf Arnalds)
Lífsgleði / Pónik (Jean & Vanguard, texti Þorvaldur Halldórsson og Erlendur Svavarsson)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Lögregla beitti piparúða á mótmælendur í Skuggasundi þann 31. maí síðastliðinn. Mótmælendur höfðu safnast saman fyrir utan ríkisstjórnarfund til að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda gagnvart Palestínu. Við heyrum frá þeim sem voru á staðnum.
Lesari: Sólveig Hauksdóttir.
Tónlist í þættinum er eftir Víf Ásdísar Svansbur, hljóðmaskínu, af plötunni Hljóðmaskína.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Við ræddum Landsmót UMFÍ 50+ sem hefst á fimmtudag við Ómar Braga Stefánsson, framkvæmdastjóri mótsins.
Við fórum yfir "Mikilvægi stuðnings við fangelsaða foreldra". Rannsókn sem Selma Dögg, sem starfaði áður sem lögreglumaður og lauk BA námi í lögreglufræðum áður en hún fór í meistaranám í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands, fór fyrir og er sú fyrsta sem gerð er um þetta málefni hér á landi.
Auður Guðjónsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur og stjórnarformaður Mænuskaðastofnunar Íslands kom til okkar að ræða skort á framþróun í þeim málum.
Nýkjörinn Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, var á línunni eftir fréttir klukkan 8.
Í kjölfarið fengum við Bryndísi Ísfold, stjórnmálafræðing, sem hefur rýnt í úrslitin og hvernig þau eru í miðað við kosningarspár. Við fáum hana til að gera kosningarnar upp með okkur.
Í íþróttaspjall þennan mánudaginn kemur Kristjana Arnarsdóttir til okkar.
Við ræddum mótmæli, borgaralega óhlýðni og viðbrögð lögreglu við Ólaf Pál Jónsson prófessor í heimspeki.
Tónlist:
MANNAKORN & ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR - Lifði Og Dó Í Reykjavík.
NATASHA BEDINGFIELD- Unwritten.
HJÁLMAR og MR. SILLA - Er hann birtist.
VALDIMAR GUÐMUNDSSON & MEMFISMAFÍAN - Það styttir alltaf upp.
MUGISON - É Dúdda Mía.
BOB MARLEY AND THE WAILERS - Jamming.

07:30

Útvarpsfréttir.

08:30

Útvarpsfréttir.
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 á föstudögum.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Andri Freyr spókar sig á sólarströnd þessa vikuna og verður því Doddi einn við Hjartagosastýrið.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-06-03
SCOPE - Was That All It Was.
Snorri Helgason, Friðrik Dór Jónsson - Birta.
Emilíana Torrini - Black Lion Lane.
Fóstbræður, Fóstbræður - Úlpan.
D:REAM - Things can only get better.
Dr. Gunni, Salóme Katrín - Í bríaríi.
Timberlake, Justin - Selfish.
RADIOHEAD - Optimistic.
Jade Bird - Uh Huh.
FINE YOUNG CANNIBALS - I'm Not The Man I Used To Be (80).
Úlfur Úlfur Hljómsveit - Myndi falla.
PHIL COLLINS - In The Air Tonight.
KK - Hafðu engar áhyggjur.
GDRN - Háspenna.
KUSK - Sommar.
Artemas - I like the way you kiss me.
Salka Sól Eyfeld - Sólin og ég.
Birnir, Bríet - Stalker.
Dennis Edwards - Don't Look Any Further (80).
Bang Gang, Dísa - Stay open heaven knows (feat. Dísa).
Kári Egilsson - In the morning.
Gugusar - Merki.
Swift, Taylor, Post Malone - Fortnight (BLOND ISH Remix).
Prince of the City - How You Feel Like.
L'Impératrice - Me Da Igual.
Synir Raspútíns - Fjötrar.
Beabadoobee - Take A Bite.
BJÖRG PÉ - Timabært.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir Söngkona - Hetjan.
Eilish, Billie - Lunch.
Ngonda, Jalen - Illusions.
THE BRAXTONS - The Boss.
Malen Áskelsdóttir - I don?t know what i saw in you.
Kasabian - Coming Back To Me Good.
MATT BIANCO - Half A Minute (80).
PRIMAL SCREAM - Country Girl.
Hjörvar Hjörleifsson - Joy.
Sivan, Troye - Got Me Started.
TOM TOM CLUB - Genius of Love.
Carpenter, Sabrina - Espresso.
BLUR - The universal.
MARK RONSON feat. AMY WINEHOUSE - Valerie.
FALCO - Der Kommissar (German) (80).
Emmsjé Gauti - Taka mig í gegn.
Björk Guðmundsdóttir Tónlistarm., Rosalia - Oral.
Hozier - Too Sweet.
ELLE KING - Ex's And Oh's.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Rúmlega fjögur hundruð misstu vinnuna í sex hópuppsögnum í maí. Vinnumálastofnun hefur ekki verið tilkynnt um svo margar uppsagnir síðan í byrjun covid-faraldursins. Forstjóri stofnunarinnar telur það þó ekki vera til marks um samdrátt á vinnumarkaði.
Vegagerðin býr sig undir að sinna vetrarþjónustu í hríðarveðri á Norður- og Austurlandi í vikunni. Norðvestanstormur gengur inn á landið norðaustanvert í kvöld og stendur óvenju lengi.
Forsætisráðherra segir umhugsunarvert að frambjóðendur í forsetakosningunum hafi gefið í skyn að embættið sé valdaembætti. Kosningabaráttan hafi verið skrautleg á köflum.
Enn gýs af sama krafti við Sundhnúksgíga. Vel er fylgst með hrauntjörnum sunnan við gossprunguna.
Félagið Ísland-Palestína hefur boðað til mótmæla við Alþingi í dag. Eftir ríkisstjórnarfund á föstudaginn beitti lögregla piparúða gegn mótmælendum. Aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, neitar því að mótmælin hafi verið friðsöm.
Lögreglan í Hafnarfirði hefur enn ekki fundið mann sem hefur veist að börnum í bænum. Margar ábendingar hafa borist.
Claudia Sheinbaum var í gær kosin forseti í Mexikó, fyrst kvenna. Kosið var í skugga mikillar ofbeldisöldu. Tuttugu frambjóðendur til sveitarstjórna voru drepnir.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Siggi Gunnars og Lovísa stóðu vaktina í Popplandi. TikTok tónlist, Höllu T House mix og plata vikunnar kynnt til leiks, 1000 orð með Birni og Bríeti. TikTok og Höllu T house mix.
Ultraflex - Say Goodbye.
BANANARAMA - Cruel Summer.
TALKING HEADS - Once In A Lifetime.
MOBY - Natural Blues.
Marlena Shaw - Woman of the Ghetto.
Riperton, Minnie - Les Fleurs.
GDRN - Háspenna.
Andrés Vilhjálmsson - Góðan daginn elskan.
TODMOBILE - Fæ Aldrei Nóg Af Þér.
Birnir, Bríet - Andar-drátt.
Richman, Tommy - Million Dollar Baby.
Skólakór Kársness, Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Sara Dís Hjaltested - Skólarapp.
MUSICAL YOUTH - Pass the dutchie.
AMPOP - My Delusions.
Wallen, Morgan, Post Malone - I Had Some Help.
Jones, Willie, Beyoncé - Just For Fun.
Lana Del Rey - Video Games.
Hildur - Alltaf eitthvað.
L'Impératrice - Me Da Igual.
LEN - Steal My Sunshine.
Grande, Ariana - We can't be friends (wait for your love).
R.E.M. - Orange Crush.
Lada Sport - Næturbrölt.
LÓN - Cold Crisp Air.
Sigvaldi Helgi Gunnarsson - Hamingja.
boygenius - Cool About It.
Una Torfadóttir - Engin spurning.
Fríða Hansen - Það var komið sumar.
Kiriyama Family - Disaster.
Last Dinner Party, The - Nothing Matters [Clean].
Ocean, Frank - Pink + White.
ÁSGEIR TRAUSTI - Hringsól.
Eilish, Billie - Lunch.
Thundercat - Dragonball Durag.
BECK - Tropicalia.
Murphy, Róisín - Let me know.
Birnir, Bríet - Juvenile.
EARTH WIND & FIRE - September.
Jónfrí, Ólafur Bjarki Bogason - Gott og vel.
YG Marley - Praise Jah In the Moonlight.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Enn virðist langt í land að samkomulag náist milli fjögurra fjölmennra stéttarfélaga í Færeyjum og viðsemjenda þeirra. Samningaviðræður stéttarfélaganna og viðsemjenda þeirra runnu út í sandinn fyrir helgi. Nú er því að hefjast fjórða vika verkfalls sem hefur mikil áhrif á daglegt líf Færeyinga. Færeyingurinn Jogvan Hansen ætlar að koma til okkar á eftir ekki til að kryfja verkfallið heldur segja okkur aðeins hvernig þetta er farið að bíta í færeyinga en von er á danska koninginum í opinbera heimsókn og spurning hvernig tekið verður á móti honum í vöruskorti og almennum vandræðum.
Ólöf Skaftadóttir fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður mæta til okkar á eftir og við ætlum að fara yfir úrslit forsetakosninganna á laugardaginn.
Japansk-íslenska ferðaþjónustufyrirtækið Trip To Japan stefnir að því að verða stærsta ferðaþjónustufyrirtæki Japans. En hvernig ætla forsvarsmenn fyrirtækisins að fara að því og hver er forsagan. Bolli Thoroddsen einn af stofnendum félagsins kemur til okkar á eftir og segir okkur betur frá.
Felix Bergsson og Gunnar Helgason eða Gunni og Felix koma til okkar á seinni klukkutímanum. Nú eru þeir félagar hættir í kosningabaráttu og margt spennandi í pípunum hjá þeim. Þeir kíkja í heimsókn til okkar og fá sér kaffibolla með okkur á eftir og segja okkur frá því sem að framundan er.
Appelsínugul veðurviðvörun tekur gildi fyrir mestallt landið í kvöld með roki og hríðarveðri. Færð gæti spillst, fólk ætti að huga að lausamunum og bændur gætu þurft að koma skepnum í skjól. Við heyrum í Katrínu Öglu Tómasdóttur veðurfræðingi í þættinum.

Útvarpsfréttir.

Fréttir
Kvöldfréttir útvarps
Þingflokkur Vinstri grænna myndi þurrkast út, væri kosið nú, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Samfylkingin mælist enn stærsti flokkurinn, með 30% fylgi.
Óvenju síðbúnu og langvinnu hreti er spáð í vikunni. Appelsínugular veðurviðvaranir gilda frá Ströndum, Vesturlandi og Vík í Mýrdal austur yfir landið vegna norðvestanstorms og hríðar.
Héraðsdómur Reykjaness sýknaði í dag Kolbein Sigþórsson, fyrrverandi knattspyrnumann, af ákæru fyrir kynferðisbrot gegn stúlkubarni.
Nigel Farage, nýr leiðtogi Umbótaflokks Bretlands og einn helsti leiðtogi Brexit-sinna, staðfesti í dag framboð sitt í komandi þingkosningum.
Íslenskir snyrtivöruframleiðendur þurfa ekki vottun til að markaðssetja vöru sína sem lífræna. Herða þarf lagaumhverfið um ört vaxandi markað, segir verkefnastjóri Lífræns Íslands.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Hve mikinn þátt í sigri Höllu Tómasdóttur átti sókn hennar á nýjum miðlum þar sem sérstaklega var höfðað til yngri kjósenda?
Breytingar á íslensku samfélagi endurspeglast í fangelsum landsins, í fyrra sættu 242 frá 40 löndum gæsluvarðhaldi og hafa aldrei verið fleiri. Fangelsismálastjóri segir þróun samfélagsins endurspeglast í fangelsunum og það þarf að hlúa betur að hinsegin nemendum í smærri byggðum landsins segja talsmenn Hinsegin lífsgæða.

Sultan er 30 mínútna lagalisti settur saman fyrir þig í hverri viku. Hlustaðu á Sultuna í útvarpinu eða í spilaranum þegar þér hentar. Á mánudögum er sulta dagsins soul, jazz og annað sem grúvar.

Fréttastofa RÚV.

Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson og Rósa Birgitta Ísfeld.
Kvöldvaktinn leggur af stað inn júní með sól í hjarta, haglél í andlitinu og fullt af nýrri tónlist meðal annars frá Sölku Sól, Zach Bryan, Emilíönu Torrini, Lón, Bríet og Birni, Fatboy Slim, Beabadoobee ásamt mörgum fleirum.
Lagalistinn
Salka Sól - Sólin og ég.
THE XX - Crystalised.
Lón - Hours.
Zach Bryan - Pink Skies.
Morgan Wallen, Post Malone - I Had Some Help.
Emilíana Torrini - Black Lion Lane.
Ella Henderson, Rudimental - Alibi.
Bettye Lavette, Odesza - The Last Goodbye
Birnir, Bríet - Andar-drátt.
CHASE AND STATUS FT. LIAM BAILY - Blind Faith.
Floni - Sárum.
Fonetik Simbol, Kött Grá Pjé - Dauði með köflum.
Hubbabubbaklubb - Mopedbart.
Billie Eilish - Lunch.
Jónfrí, Ólafur Bjarki - Gott og vel.
Fever Ray - Seven (The Twelves Remix).
Brijean, Toro y Moi - Genius of Love.
Kendrick Lamar - Not Like Us.
ERYKAH BADU - Window Seat.
Kamasi Washington, Clinton, George, D Smoke - Get Lit.
Prins Póló, Moses Hightower - Eyja.
Young Nudy, Childish Gambino - Little Foot Big Foot
Cosmo's Midnight, Spill Tab - Eating Heartache (
Barry Can't Swim - Kimbara.
CHEMICAL BROTHERS - Got to keep on.
Luca Guerrieri, Fatboy Slim, Dan Diamond - Role Model
AIR - Sexy Boy.
Ultraflex - Say Goodbye.
Carpenter, Sabrina - Espresso.
Neil Frances - Music sounds better with you.
PARCELS - Somethinggreater.
Empire of the sun - Music On The Radio.
Roosevelt - Automatic.
Tame Impala, Justice - Neverender.
Malen Áskelsdóttir - I don?t know what i saw in you.
Beabadoobee - Take A Bite [Vocal Up Mix].
JESUS AND MARY CHAIN - Just Like Honey.
Kári Egilsson - In the morning.
Hinds, Beck - Boom Boom Back
Miiike Snow - I Was A Sailor
Sigurður Guðmunds og Una Torfa - Þetta líf er allt í læ
Fontaines D.C. - Jackie Down the Line
Jake Bugg - Zombieland
Amy and the Sniffers - U Should Not Be Doing That

Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Bríet og Birnir hafa verið vinir í mörg ár og nú er loksins komið að því, þau sameinuðu krafta sína í verkinu, 1000 orð. Þau settust niður með Völu Eiríks, ræddu tónlistina, sögðu bransasögur og hleyptu okkur bakvið glamúrinn.