11:02
Vikulokin
Bergur Ebbi, Kristín Ólafsdóttir og Stefán Þór Helgason

Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.

Vikulok á kjördegi - umræður um kosningabaráttuna, síðustu kappræður, tungutak frambjóðenda og fleira. Sakfelling Donalds Trump var einnig á dagskrá og mögulegar afleiðingar hennar á feril forsetaframbjóðandans og úrslit kosninga í nóvember. Þá var rætt um mótmæli vegna framgöngu íslenskra stjórnvalda andspænis stríðinu á Gaza.

Gestir: Bergur Ebbi Benediktsson, höfundur, Kristín Ólafsdóttir fréttamaður og Stefán Þór Helgason stjórnmálafræðingur

Umsjón: Guðrún Sóley Gestsdóttir.

Var aðgengilegt til 01. júní 2025.
Lengd: 55 mín.
,