Í þáttunum Steypiregn kynnir Margrét Kristín Blöndal tónlistarmenn og tónlistarkonur sem hafa átt ríkan þátt í gera heiminn enn betri og fegurri. Í hverjum þætti er einn listamaður tekinn fyrir og verk hans kynnt fyrir hlustendum.
Þættirnir voru áður á dagskrá árið 2014.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Í þessum þætti eru fluttir átthagasöngvar, en það orð er notað um söngva sem mæra einhvern tiltekinn stað á landinu. Oftast eru höfundar slíkra ljóða að yrkja um átthaga sína, landsvæðið þar sem þeir hafa alist upp eða átt heima í mörg ár. Meðal frægra íslenskra átthagasöngva eru „Skín við sólu Skagafjörður“ eftir Sigurð Helgason við ljóð Matthíasar Jochumssonar, „Blessuð sértu sveitin mín“ eftir Bjarna Þorsteinsson við kvæði Sigurðrar Jónssonar frá Arnarvatni, og „Átthagaljóð“, lag Inga T. Lárussonar við ljóð Sigurðar Arngrímssonar. Þessir söngvar verða fluttir í þættinum, og margir fleiri, sumir alkunnir, en aðrir lítt þekktir.
Fimm þættir um þjóðarleiðtoga sem aðhyllast þjóðernispopúlisma.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.
Fimm þættir um þjóðarleiðtoga sem aðhyllast þjóðernispopúlisma.
Í fjórða þætti er fjallað um Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands. Viðmælendur eru Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor og Valur Ingimundarson sagnfræðiprófessor.
Umsjón: Guðrún Hálfdánardóttir.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 27. ágúst 2022.


frá Veðurstofu Íslands.
Fjöllin, fólkið, kyrrðin, pollurinn og erótískar skáldsögur. Þetta og fleira til laðar fólk til Tálknafjarðar. Atvinna er grundvallaratriði, slúðrið getur verið hvimleitt en samheldnin vegur upp á móti. Íbúum fækkar þrátt fyrir uppgang og húsnæði er af skornum skammti en Tálknfirðingar gefast ekki upp. Fjörðurinn rígheldur.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.
Náttúran, fólkið, kyrrðin, pollurinn og erótískar skáldsögur. Þetta og fleira til laðar fólk til Tálknafjarðar. Atvinna er grundvallaratriði, slúðrið getur verið hvimleitt en samheldnin vegur upp á móti. Íbúum fækkar þrátt fyrir uppgang og húsnæði er af skornum skammti en Tálknfirðingar gefast ekki upp. Fjörðurinn heldur. Þetta er fyrsti þáttur af þremur um lífið á Tálknafirði.
Viðmælendur: Margrét Magnúsdóttir, Guðlaugur Albertsson, Eva Dögg Jóhannesdóttir, Jóhanna Eyrún Guðnadótir, Ársæll Níelsson,
Kristinn Hilmar Marínósson, Guðmundur Björn Þórsson, Sindri Snær Ingvason, Ægir Örn Ingvason, Eydís Hulda Jóhannesdóttir, Heather Sosbee, Guðjón Indriðason og Þór Magnússon.
Prestur og predikari: Sr. Sigurður Grétar Sigurðsson
Organisti: Aron Axel Cortes
Kirkjukór Útskála- og Hvalsnessókna.
Stjórnandi: Aron Axel Cortes
Meðhjálpari og lesari: Sólrún María Henriksdóttir
TÓNLIST Í MESSUNNI -
Forspil í B-dúr eftir Heinrich Bungart
Sálmur nr. 132 Sigurhátíð Sæl og blíð. Lag: Jean B. Lully 1661 – Kingo 1674 – Paradísarlykill 1686 – Sb. 1751. Texti: Páll Jónsson – Sb 1871
Sálmur nr. 265 - Þig lofar faðir líf og önd. T: Sigurbjörn Einarsson, L: N.Decius
Sálmur nr. 339 – Hallelúja, Ó, Guð við lofum þig. Texti: Höf. Ók. – Óskar Einarsson 1996, Lag: Höf. Ók, /Radds. Óskar Einarsson
Sálmur nr. 156 – Ég á mér hirði hér á jörð. Texti: Svavar A. Jónsson 1995, sb. 1997. Lag: Columbian Harmony 1829
Sálmur nr. 582 – Drottinn er minn hirðir. Texti: Davíðssálmur 23, Lag: Margrét Scheving 1983
Sálmur nr. 242 – Megi gæfan þig geyma. Texti: Írsk, keltnesk blessun – Bjarni Stefán Konráðsson 2001. Lag: Nickomo Clarke 1989
Eftirspil í C-dúr, Op.116 eftir Ch.H.Rinck

Íslenskt lag eða tónverk.

Útvarpsfréttir.

Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimskviða beinum við sjónum okkar að Artemis II, leiðangrinum sem farinn var á tunglið fyrr í mánuðinum. Sævar Helgi Bragason er gestur þáttarins og veit allt um málið.
Karl Th. Birgisson fjallar um sögu Persa eða Írana, frá upphafi til okkar daga.
Þættirnir eru frá árinu 2005.
Karl Th. Birgisson fjallar um sögu Persa eða Írana, frá upphafi til okkar daga. Fimmti og síðasti þáttur.
Í þættinum er spiluð sígild persnesk tónlist.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 4. september 2005.

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Úrval úr Lestarþáttum vikunnar.

Útvarpsfréttir.

Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Tónhjólið hverfist að þessu sinni um nýleg tónverk sem samin hafa verið við ljóð íslenskra, og norrænna, stórskálda. Leiknar eru hljóðritanir frá tónleikum KIMA á tónlistarhátíðinni Seiglu þann 10. ágúst síðastliðinn, til heiðurs Thor Vilhjálmssyni, en auk þess leikið af tveimur nýlegum geislaplötum sem innihalda nýja íslenska ljóðasöngsflokka, plötu sópransöngkonunnar Hallveigar Rúnarsdóttur og danska píanistans Ulrich Stærk, Songs of longing and love, og Ó eilífi foss sem rambar á fossvegum guðs, plötu með tónverki Kolbeins Bjarnasonar við ljóð Steinunnar Sigurðardóttur.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Halldór Laxness skrifaði Ríkisútvarpinu bréf árið 1974, annars annars vegar um þrjá danska hortitti og hins vegar um stefnutilvísanir; og Helgi J. Halldórsson las þau upp í þættinum Daglegu máli.

Fréttir
Sögur fólks sem þurfti að dvelja barnungt á heimavist fjarri fjölskyldum sínum til þess að stunda grunnskólanám. Fyrir mörg var það þungbær reynsla meðan önnur eiga ljúfar minningar.
Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.
Umsjónarmaður heimsækir sinn gamla skóla, Þelamerkurskóla í Hörgárdal, og spjallar við fólk sem dvaldi þar í heimavist á sjöunda og áttunda áratugnum. Sum þeirra ylja sér við ljúfar minningar en önnur líkja vistinni við helvíti á jörð.
Viðmælendur. Anna Rósa Friðriksdóttir, Anna Ragna Árnadóttir, Eydís Björk Davíðsdóttir og ónefnd systkini.
Umsjón og dagskrárgerð: Þórgunnur Oddsdóttir.

frá Veðurstofu Íslands

Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Þorkell Heiðarsson, líffræðingur og formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga. Hann kom með nokkrar af sínum eftirlætisbókum og spjallaði um þær við okkur.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Það styttist í að það verði heil 40 liðin frá kjarnorkuslysinu í Chernobyl. Áhrifanna gætir enn, söguna þekkja flestir en það tók nokkurn tíma að fyrir önnur lönd að átta sig á því sem hafði gerst. Sovésk yfirvöld reyndu að halda slysinu leyndu og það var ekki fyrr en geislavirk efni voru farin að berast til og mælast í andrúmslofti nágrannaríkjanna að ljós var að eitthvað verulega alvarlegt hafði gerst. Við rifjum upp söguna.
Kjarnorka er þó ekki alslæm og má segja að hún sé komin aftur í tísku eftir orkukreppur síðustu ára, sérstaklega í Evrópu. Við skoðum orkunotkur Evrópuríkja og hvaða áhrif hækkandi orkuverð hefur. En þó að kjarnorkan sé í tísku þá fylgja henni margir ókostir, sá stærsti er kjarnorkuúrgangurinn og hvað á að gera við hann. Finnar opna á næstu vikum fyrstu geymslustöðina fyrir kjarnorkuúrgang, sem er neðanjarðar undir stærsta kjarnorkuveri Finna.
Talið er að á milli tuttugu og þrjátíu þúsund erlendir hermenn berjist með Rússlandsher á vígvellinum í Úkraínu, langflestir frá fátækum ríkjum. Hluti þeirra hélt að sín biði vinna í Rússlandi, til dæmis við trukkaakstur eða í landbúnaði, en endaði svo á víglínunni. Vegabréfin eru tekin af þeim, rússnesk stjórnvöld geta upp á sitt eindæmi framlengt herþjónustuna þangað til stríðinu lýkur og margir hafa greint frá því að vera hótað ofbeldi og dauða reyni þeir að flýja. Danski fræðimaðurinn Karen Philippa Larsen fór til Úkraínu og ræddi við nokkra þessara erlendu hermanna sem teknir höfðu verið til fanga. Þeir sögðust helst hafa ráðið sig í vinnu til Rússlands í von um ríkisborgararétt og mannsæmandi laun. Hún segir aðstæður þeirra minna á mansal. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið.
Fjöllin, fólkið, kyrrðin, pollurinn og erótískar skáldsögur. Þetta og fleira til laðar fólk til Tálknafjarðar. Atvinna er grundvallaratriði, slúðrið getur verið hvimleitt en samheldnin vegur upp á móti. Íbúum fækkar þrátt fyrir uppgang og húsnæði er af skornum skammti en Tálknfirðingar gefast ekki upp. Fjörðurinn rígheldur.
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.
Náttúran, fólkið, kyrrðin, pollurinn og erótískar skáldsögur. Þetta og fleira til laðar fólk til Tálknafjarðar. Atvinna er grundvallaratriði, slúðrið getur verið hvimleitt en samheldnin vegur upp á móti. Íbúum fækkar þrátt fyrir uppgang og húsnæði er af skornum skammti en Tálknfirðingar gefast ekki upp. Fjörðurinn heldur. Þetta er fyrsti þáttur af þremur um lífið á Tálknafirði.
Viðmælendur: Margrét Magnúsdóttir, Guðlaugur Albertsson, Eva Dögg Jóhannesdóttir, Jóhanna Eyrún Guðnadótir, Ársæll Níelsson,
Kristinn Hilmar Marínósson, Guðmundur Björn Þórsson, Sindri Snær Ingvason, Ægir Örn Ingvason, Eydís Hulda Jóhannesdóttir, Heather Sosbee, Guðjón Indriðason og Þór Magnússon.
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga. Leiðbeinendur: Þorgerður E. Sigurðardóttir og Anna Marsibil Clausen.
Guðný frá Galtafelli, langamma mín, gaf út fyrstu bók á níræðs aldri, það er greinilega aldrei of seint að byrja að skrifa!
Hún skráði tímana sem liðu, en ekki endilega þær sögur sem lifðu í fjölskyldunni.
Hvaða minningar lifa, og hverjar gleymast?
Þetta er mín leið til að nálgast formóður sem ég hitti aldrei,
en hef alltaf viljað kynnast.
Umsjón: Gígja Sara H. Björnsson


frá Veðurstofu Íslands

Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Netherlands Radio Chamber Orchestra, Kashkashian, Kim - Movement for viola and orchestra.
Choi, Ye-Eun, Mutter, Anne-Sophie, Razavi, Muriel, Ferrández, Pablo - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : I. Maestoso - Largo subito.
Mutter, Anne-Sophie, Choi, Ye-Eun, Ferrández, Pablo, Razavi, Muriel - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : II. Poco più tranquillo.
Mutter, Anne-Sophie, Ferrández, Pablo, Choi, Ye-Eun, Razavi, Muriel - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : III. Poco accelerando.
Choi, Ye-Eun, Razavi, Muriel, Mutter, Anne-Sophie, Ferrández, Pablo - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : IV. Poco più mosso (ma calmo!).
Mutter, Anne-Sophie, Choi, Ye-Eun, Ferrández, Pablo, Razavi, Muriel - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : V. Pesante subito - Presto vivace.
Mutter, Anne-Sophie, Choi, Ye-Eun, Ferrández, Pablo, Razavi, Muriel - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : VI. Più pesante.
Choi, Ye-Eun, Razavi, Muriel, Mutter, Anne-Sophie, Ferrández, Pablo - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : VII. L'istesso tempo.
Mutter, Anne-Sophie, Choi, Ye-Eun, Ferrández, Pablo, Razavi, Muriel - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : VIII. Più mosso (molto ritmico).
Choi, Ye-Eun, Mutter, Anne-Sophie, Razavi, Muriel, Ferrández, Pablo - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : IX. Molto vivace.
Mutter, Anne-Sophie, Choi, Ye-Eun, Ferrández, Pablo, Razavi, Muriel - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : X. Scherzando vivace (spielerisch,.
Mutter, Anne-Sophie, Ferrández, Pablo, Choi, Ye-Eun, Razavi, Muriel - Studie über Beethoven (String quartet no.6) : XI. Feroce, agitato subito.
Stærk, Ulrich, Hallveig Rúnarsdóttir - Wesendonck Lieder: II. Stehe Still.

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Gunnar Theódor Eggertsson hefur komist að því að Íslendingar séu að líkindum með þeim allra fyrstu sem skrifuðu dýrasögur á ofanverðri 19. öld. Þá er ekki átt við sögur þar sem dýrin tala eða hafa mjög mannlega eiginleika, heldur er reynt að lýsa ævi þeirra frá þeirra forsendum. Hér verða lesnar tvær sögur, önnur er Heimþrá eftir Þorgils gjallanda og hin Skjóni eftir Gest Pálsson.

Útvarpsfréttir.
Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Gestur þáttarins í dag var Hinrik Ólafsson leikari og leiðsögumaður og á línunni í sveitasímanum var Steinunn Ása Sigurðardóttir á Flateyri. Huggulegir tónar að hætti Huldu voru svo auðvitað á sínum stað.
Lagalisti:
Jón Ólafsson - Sunnudagsmorgunn.
Velvet Underground & Nico - Sunday morning.
Kris Kristofferson - Sunday morning coming down.
Bjartmar Guðlaugsson - Sunnudagsmorgunn.
Ágúst & Una Torfa - Inn í síðustu nóttina.
Íkorni - Vonarströnd.
Lenny Kravitz - Ooo baby baby.
Jónas Sig - Að lokum.
Bryan Ferry - Don't stop the dance.
Malen - Anywhere.
Ásgeir Trausti - Against the current.
Árný Margrét - Greyhound station.
The Beach boys - Surfin' USA.
Bruce Springsteen - Cover me.


Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.

Útvarpsfréttir.

Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Útvarpsfréttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.


Spennandi tónar bergmála um göngugötuna í Mjóddinni. Indírokk, alternative, lo-fi, dreampop og margt annað áhugavert. Verið velkomin í Mjóddina, þar sem hjartað slær.
Umsjón: Björn Þór Björnsson
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Ívar Klausen sendir frá sér sína fyrstu sólóplötu, metnaðarfullt verk sem einkennist af mikilli spilagleði og fjölbreytileika. Ívar miðlar hér reynslu sinni úr ólíkum áttum, allt frá þungarokki yfir í djass og popp. Við settumst niður og ræddum ferilinn fram að þessu, mennska tónlist, Dio og allt þar á milli. Svo hlustum við auðvitað á lögin af plötunni ásamt kynningum.