16:05
Tónhjólið
Ný íslensk ljóðasöngsverk

Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.

Tónhjólið hverfist að þessu sinni um nýleg tónverk sem samin hafa verið við ljóð íslenskra, og norrænna, stórskálda. Leiknar eru hljóðritanir frá tónleikum KIMA á tónlistarhátíðinni Seiglu þann 10. ágúst síðastliðinn, til heiðurs Thor Vilhjálmssyni, en auk þess leikið af tveimur nýlegum geislaplötum sem innihalda nýja íslenska ljóðasöngsflokka, plötu sópransöngkonunnar Hallveigar Rúnarsdóttur og danska píanistans Ulrich Stærk, Songs of longing and love, og Ó eilífi foss sem rambar á fossvegum guðs, plötu með tónverki Kolbeins Bjarnasonar við ljóð Steinunnar Sigurðardóttur.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 24 mín.
,