Að þessu sinni er settið troðfullt af húsdýrum, Fransína heldur á páfagauk sem er mjög frekur og rífst og skammast viðstöðulaust. Fransínu bregður í brún þegar Björgvin kemur inn og hann er heldur betur hissa að sjá öll þessi dýr. Fransína segir Björgvini frá því að dyrnar inn í villidýraland hafi óvart opnast og að villidýrin öll hafi farið inní gæludýraland, þess vegna verði Björgvin að passa dýrin á meðan Fransína bjargar málunum.