Björgvin Franz mætir eftir sumarfrí, heilsar Spegli Speglagrímssyni, segir honum frá sumrinu og þegar birtist mús. Björgvin öskrar upp yfir sig skíthræddur og rekur höfuðið í, hann áttar sig þó brátt á að músin er meinlaus og í raun bara nokkuð forvitnileg og skemmtileg. Hún hefur útbúið sér holu í öðrum af stólum Björgvins og er ævintýragangavörður niðri í jörðinni. Hún heitir Björgvina Franzína Gísladóttir.