Í dag er Spegill Speglagrímsson að fræða Björgvin um hina ýmsu jólasveina. Þegar Björgvin fer með fyrri hluta teikniblokkadýramyndagátunnar kemur Fransína hlaupandi og segir honum frá skrítnum karli í rauðum fötum og með hvítt skegg sem er fastur niðri á ævintýragangi. Á sama tíma birtist Stúfur úr lausu lofti, en hann hafði náð töfraduftinu frá Fransínu og töfrað sig upp. Björgvin og Fransína flýja eins og fætur toga, rekast saman og rotast. Stúfur skilur ekkert í þessu og Björgvin heilsar honum þegar hann rankar við sér, Fransína verður hrædd en Björgvin útskýrir hver þetta er og að það sé ekkert að óttast við þennan kall. En Stúfur er í uppnámi yfir því að hafa sprautað sultu yfir bók Grýlu en Fransína kemur með þá snilldarhugmynd að útbúa nýja bók áður en Grýla kemst að þessu.