Siglufjörður - saga bæjar

Þáttur 3 af 5

Í þriðja þætti er fjallað um það sem kallað var stærsti hjónabandsmarkaður Íslands, strit kvennanna á síldarplönunum og síldargróðann, en einnig síldarleysisár sem komu inn á milli. Fjallað er um harða verkalýðsbaráttu, Rauða planið og fyrirætlanir um setja upp vísi Sovét-Íslandi og loks dularfullt hvarf verkalýðsforingjans Guðmundar Skarphéðinssonar.

Frumsýnt

19. jan. 2020

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Siglufjörður - saga bæjar

Siglufjörður - saga bæjar

Þáttaröð í umsjón Egils Helgasonar þar sem saga Siglufjarðar er rakin. Bærinn var lengi utan alfaraleiðar en vegna mikils uppgangs á 20. öld varð hann þungamiðja síldveiða sem um skeið voru arðvænlegasta atvinnugrein á Íslandi. Í þáttunum er einnig sagt frá skemmtanalífi, rómantík, slagsmálum, tónlist, skíðaiðkun og einstökum bæjarbrag. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.

Þættir

,