Síðdegisútvarpið

Aukinn ferðakostnaður við íþróttaiðkun barna, heitavatnslaust í Kópavogi og þungarokk.

Við höldum áfram fjalla um háan ferðakostnað sem foreldrar og íþróttafélög á landsbyggðinni þurfa standa straum af en margar fjölskyldur greiða mörg hundruð þúsund á ári vegna ferðalaga barna í tengslum við leiki og mót. Þetta er auðvitað mjög íþyngjandi kostnaður og alls ekki á færi allra taka þátt! Heiðrún Tryggvadóttir formaður barna-og unglingaráðs körfuknattleiksdeildar Vestra, var á línunni.

Heitavatnslaust varð á stórum hluta Kópavogs í morgun og samkvæmt upplýsingum frá Veitum er verið lagfæra bilunina sem varð Silja Ingólfsdóttir er upplýsingafulltrúi Veitna, við heyrðum í henni.

Við ætlum heyra um áhugaverða nýjung í umönnun aldraðra, svokölluð „símalaus heimili“ á Hrafnistu, þar sem áhersla er lögð á nærveru og bætt mannleg samskipti. Innleiðingu verkefnisins fór fram í byrjun árs og jákvæð áhrif eru þegar farin koma í ljós, þær Gunnur Helgadóttir framkvæmdastjóri á heilbrigðissviði Hrafnistuheimilanna og Jakobína Hólmfríður Árnadóttir mannauðsstjóri komu til okkar.

Heimsmarkaðurinn fyrir endurnýjaðan tölvubúnað er í miklum vexti. Það er víst algengur misskilningur endurnýjaður búnaður gamaldags eða lúinn. Sparnaður við velja endurnýjaðan búnað jafnaði 40-60% miðað við nýjan búnað. Trausti Eiríksson vörustjóri HP hjá O.K. sagði okkur frá.

Frá og með næsta hausti verður boðið upp á nýja námsleið hjá Landbúnaðarháskóla Íslands en um er ræða diplómanám í búvísindum með sérstaka áherslu á dýraheilbrigði, þar sem nemendur geta tekið fyrstu skrefin hér heima áður en þeir halda mögulega áfram í dýralæknisfræði erlendis. Þetta opnar tækifæri fyrir þau sem vilja mennta sig á þessu sviði án þess flytja strax úr landi. Við fengum til okkar gesti sem þekkja verkefnið vel, þær Báru Eyfjörð Heimisdóttur formaður stjórnar Dýralæknafélags Íslands og Auði Lilju Arnþórsdóttur en hún er verkefnisstjóri námsins.

Hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle verður haldin á laugardaginn. Í ár keppa sjö sveitir í úrslitum og mun fjölskipuð alþjóðleg dómnefnd ásamt áhorfendum velja eina af þeim til þess spila fyrir Íslands hönd á stærstu þungarokkshátíð heims Wacken Open Air í sumar. Þar spilar hún fyrir mörg þúsund manns. Þorsteinn Kolbeinsson veit allt um málið hann kom til okkar.

Birt

20. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,