Síðdegisútvarpið

Sveitastjórnarkosningar heimsókn í Árborg, landsleikur í kvennaknattspyrnu og prjónamótmæli

Stelpurnar okkar spila mikilvægan leik á móti Englandi á Laugardalsvelli á morgun í undankeppni heimsmeistaramótsins í fótbolta. Mæting á síðasta leik var dræm en aðeins 1.500 áhorfendur mættu til hvetja þær áfram - en hvað veldur? Víðir Sigurðsson íþróttablaðamaður ræddi við okkur í gær og velti því meðal annars upp hvort Knattspyrnusamband Íslands hefði mátt standa sig betur í kynna leikinn - í dag er hann Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri sambandsins, mætti til okkar til ræða þetta mál.

Mikill tími og kostnaður sem fylgir íþróttastarfi barna og unglinga getur verið verulega íþyngjandi fyrir foreldra, sérstaklega fyrir þá sem búa úti á landi. Kostnaður yfir eitt keppnistímabil getur hlaupið á hálfri milljón fyrir eitt barn. Áhyggjur eru uppi um sum börn sitji hreinlega eftir vegna þessa. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður Flokks fólksins fer fyrir stýrihópi sem hefur fengið það hlutverk rýna í þessi mál. Hún ritaði grein um þetta á Vísi og var á línunni.

Í kvöld mætast oddvitar flokkanna sem bjóða fram í Árborg. Í tilefni þess skellum við okkur austur fyrir fjall og förum á Selfoss. Þar hittum við Guðmund Karl Sigurdórsson ritstjóra Sunnlenska og Magnús J. Magnússon, formann Félags eldri borgara á Selfossi, og fengum vita hvað er efst á baugi þar fyrir kosningarnar.

Barnamenningarhátíð hefst í Reykjavík á mánudaginn og stendur til 26. Apríl og er vettvangur hátíðarinnar öll borgin. Frítt er inn á alla viðburði hátíðarinnar. Björg Jónsdóttir heldur utan um hátíðinina og hún kom til okkar og sagði okkur frá því allra helsta.

Prjónar og mótmæli fara ekki alltaf saman en á sunnudaginn verður það einmitt raunin í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar verður efnt til svokallaðra prjónamótmæla þar sem rauðar skotthúfur verða prjónaðar til mótmæla aðgerðum og hervæðingu ICE-liða í Bandaríkjunum. Verkefnið hefur vakið mikla athygli og áhugi hér heima verið það mikill yfir hundrað manns hafa þegar tryggt sér þátttöku.En hvað felst í þessum mótmælum og hvers vegna prjóna til mótmæla? Við ræddum þetta við þær Önnu Lúðvíksdóttur og Sigrúnu Bragadóttur frá íslandsdeild Amnesty International en þær komu til okkar í Síðdegisútvarpið.

Það hefur verið talað um kulda í íslenskri kvikmyndagerð þessa dagana, verkefni stöðvast, óvissa um fjármögnun og margir í greininni bíða eftir næstu ákvörðunum stjórnvalda. Við

ræddum stöðuna og hvað þarf til koma hjólunum aftur af stað við Steingrím Dúa Másson formann Félags kvikmyndagerðarmanna. En svo færðum við okkur yfir í allt annað því Steingrímur hefur nýlega sent frá sér bók, íslenska vísindaskáldsögu og við ræddum hana.

Birt

17. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Síðdegisútvarpið

Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,