Stelpurnar okkar spila mikilvægan leik á móti Englandi á Laugardalsvelli á morgun í undankeppni heimsmeistaramótsins í fótbolta. Mæting á síðasta leik var dræm en aðeins 1.500 áhorfendur mættu til að hvetja þær áfram - en hvað veldur? Víðir Sigurðsson íþróttablaðamaður ræddi við okkur í gær og velti því meðal annars upp hvort Knattspyrnusamband Íslands hefði mátt standa sig betur í að kynna leikinn - í dag er hann Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri sambandsins, mætti til okkar til að ræða þetta mál.
Mikill tími og kostnaður sem fylgir íþróttastarfi barna og unglinga getur verið verulega íþyngjandi fyrir foreldra, sérstaklega fyrir þá sem búa úti á landi. Kostnaður yfir eitt keppnistímabil getur hlaupið á hálfri milljón fyrir eitt barn. Áhyggjur eru uppi um að sum börn sitji hreinlega eftir vegna þessa. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður Flokks fólksins fer fyrir stýrihópi sem hefur fengið það hlutverk að rýna í þessi mál. Hún ritaði grein um þetta á Vísi og var á línunni.
Í kvöld mætast oddvitar flokkanna sem bjóða fram í Árborg. Í tilefni þess skellum við okkur austur fyrir fjall og förum á Selfoss. Þar hittum við Guðmund Karl Sigurdórsson ritstjóra Sunnlenska og Magnús J. Magnússon, formann Félags eldri borgara á Selfossi, og fengum að vita hvað er efst á baugi þar fyrir kosningarnar.
Barnamenningarhátíð hefst í Reykjavík á mánudaginn og stendur til 26. Apríl og er vettvangur hátíðarinnar öll borgin. Frítt er inn á alla viðburði hátíðarinnar. Björg Jónsdóttir heldur utan um hátíðinina og hún kom til okkar og sagði okkur frá því allra helsta.
Prjónar og mótmæli fara ekki alltaf saman – en á sunnudaginn verður það einmitt raunin í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar verður efnt til svokallaðra prjónamótmæla þar sem rauðar skotthúfur verða prjónaðar til að mótmæla aðgerðum og hervæðingu ICE-liða í Bandaríkjunum. Verkefnið hefur vakið mikla athygli og áhugi hér heima verið það mikill að yfir hundrað manns hafa þegar tryggt sér þátttöku.En hvað felst í þessum mótmælum og hvers vegna að prjóna til að mótmæla? Við ræddum þetta við þær Önnu Lúðvíksdóttur og Sigrúnu Bragadóttur frá íslandsdeild Amnesty International en þær komu til okkar í Síðdegisútvarpið.
Það hefur verið talað um kulda í íslenskri kvikmyndagerð þessa dagana, verkefni að stöðvast, óvissa um fjármögnun og margir í greininni að bíða eftir næstu ákvörðunum stjórnvalda. Við
ræddum stöðuna og hvað þarf til að koma hjólunum aftur af stað við Steingrím Dúa Másson formann Félags kvikmyndagerðarmanna. En svo færðum við okkur yfir í allt annað – því Steingrímur hefur nýlega sent frá sér bók, íslenska vísindaskáldsögu og við ræddum hana.