Við höldum áfram að fjalla um háan ferðakostnað sem foreldrar og íþróttafélög á landsbyggðinni þurfa að standa straum af en margar fjölskyldur greiða mörg hundruð þúsund á ári vegna ferðalaga barna í tengslum við leiki og mót. Þetta er auðvitað mjög íþyngjandi kostnaður og alls ekki á færi allra að taka þátt! Heiðrún Tryggvadóttir formaður barna-og unglingaráðs körfuknattleiksdeildar Vestra, var á línunni.
Heitavatnslaust varð á stórum hluta Kópavogs í morgun og samkvæmt upplýsingum frá Veitum er verið að lagfæra bilunina sem varð Silja Ingólfsdóttir er upplýsingafulltrúi Veitna, við heyrðum í henni.
Við ætlum að heyra um áhugaverða nýjung í umönnun aldraðra, svokölluð „símalaus heimili“ á Hrafnistu, þar sem áhersla er lögð á nærveru og bætt mannleg samskipti. Innleiðingu verkefnisins fór fram í byrjun árs og jákvæð áhrif eru þegar farin að koma í ljós, þær Gunnur Helgadóttir framkvæmdastjóri á heilbrigðissviði Hrafnistuheimilanna og Jakobína Hólmfríður Árnadóttir mannauðsstjóri komu til okkar.
Heimsmarkaðurinn fyrir endurnýjaðan tölvubúnað er í miklum vexti. Það er víst algengur misskilningur að endurnýjaður búnaður sé gamaldags eða lúinn. Sparnaður við að velja endurnýjaðan búnað sé að jafnaði 40-60% miðað við nýjan búnað. Trausti Eiríksson vörustjóri HP hjá O.K. sagði okkur frá.
Frá og með næsta hausti verður boðið upp á nýja námsleið hjá Landbúnaðarháskóla Íslands en um er að ræða diplómanám í búvísindum með sérstaka áherslu á dýraheilbrigði, þar sem nemendur geta nú tekið fyrstu skrefin hér heima áður en þeir halda mögulega áfram í dýralæknisfræði erlendis. Þetta opnar ný tækifæri fyrir þau sem vilja mennta sig á þessu sviði án þess að flytja strax úr landi. Við fengum til okkar gesti sem þekkja verkefnið vel, þær Báru Eyfjörð Heimisdóttur formaður stjórnar Dýralæknafélags Íslands og Auði Lilju Arnþórsdóttur en hún er verkefnisstjóri námsins.
Hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle verður haldin á laugardaginn. Í ár keppa sjö sveitir í úrslitum og mun fjölskipuð alþjóðleg dómnefnd ásamt áhorfendum velja eina af þeim til þess að spila fyrir Íslands hönd á stærstu þungarokkshátíð heims Wacken Open Air í sumar. Þar spilar hún fyrir mörg þúsund manns. Þorsteinn Kolbeinsson veit allt um málið hann kom til okkar.