Morgunútvarpið

Skömmin var aldrei mín,sjálfkeyrandi bílar,umdeild loftbrú,kreatín og þingmaður vill veiða álftir

Þórarinn Ingi Pétursson, þingmaður Framsóknar, vill að það verði leyft að veiða álftir á ákveðnu tímabili en þær eru friðaðar á Íslandi. Álftin var friðuð á Íslandi árið 1913 en í greinargerð með tillögunni er bent á að álftastofninn hafi margfaldast á liðnum áratugum. Árið 1960 hafi hann verið í kringum 3 til 5 þúsund fuglar en árið 2020 hafi hann verið orðinn 43 þúsund. Þórarinn Ingi verður á línunni.

Guðmundur Jóhannsson er einn af okkar eftirlætismönnum og mætir sprúðlandi hress með mola úr heimi tækninnar.

Eyjólfur Ármansson innviðaráðherra ætlar að endurskoða boðaðar breytingar á Loftbrú. Hann tilkynnti fyrir helgi að niðurgreiðsla á innanlandsflugi færi úr 40 prósentum af heildarverði í 7.000 krónur á fluglegg um áramót. Eftir að mikil gagnrýni kom fram á tillöguna vill Eyjólfur hann hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9.000 krónur á fluglegg. Er það nóg? Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, verður á línunni.

Skömmin var aldrei mín er opinská saga um fjölskyldubönd, áföll og ósýnileg mynstur sem geta fylgt fólki langt fram á fullorðinsár – og batann sem felst í að rjúfa vítahringinn, axla ábyrgð á eigin lífi og velja aðra leið. Í þessari áhrifamiklu sjálfsævisögu rekur Hrund Ottósdóttir leið sína frá æsku, þar sem þögn, meðvirkni og áföll móta sjálfsmynd hennar, yfir í fullorðinsár þar sem hún ber sívaxandi innri byrði. Hrund kemur til okkar.

Kreatín er á allra vörum og í allra vöðvum þessa dagana. Bent hefur verið á að ekkert fæðubótarefni hafi verið meira rannsakað og áhrifn á vöðvamassa og styrk eru vel kortlögð. Nú er hins vegar talað um að kreatín hafi líka jákvæð áhrif á heilastarfsemi og Dögg Guðmundsdóttir næringarfræðingur kemur og fræðir okkur um hvað er satt og hvað er logið um þetta áhugaverða efni.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,