Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Menningarborgin ReykjavíkDjöflar,Bókun 35,Gummi Ben í Tallinn og eru íþróttir fyrir öll börn

Við byrjum á léttu nótunum. Bókun 35 er komin á dagskrá þingsins og við í Morgunútvarpinu veltum fyrir okkur hvenær og hvernig málið verður klárað. Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingar sem á sæti í utanríkismálanefnd, verður á línunni.

Reykjavíkurborg sagði nýlega upp fjölda leigusamninga við fólk í skapandi störfum vegna eldvarna. Leigjendum þykja fyrirheit um hverfi lista og frumkvöðla í Gufunesi hafa farið fyrir lítið. Við fengum myndlistamann til okkar í síðustu viku en hvernig sér borgin fyrir sér framtíð menningar og lista? Rúnar Freyr Gíslason, borgarfulltrúi og formaður menningarráðs Reykjavíkur, kemur til okkar.

Ísland mætir Eistlandi á ný í C-deild Þjóðardeildarinnar í kvöld en leikurinn er sá fjórði sem liðið spilar í þessu óralanga landsleikjahlé. Guðmundur Benediktsson verður á línunni frá Tallin, þar sem leikurinn fer fram, og spáir í spilin með okkur.

Heimili á lágmarkslaunum eru í þröngri stöðu þegar kemur að því að greiða uppsett æfingagjöld í skipulögðu íþróttastarfi. Félagslegur þrýstingur á aukaæfingar og krafa um árangur hefur aukist. Fólk veltir eðlilega fyrir sér hvort við séum á réttri leið og fáum Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, kemur til okkar og ræðir málin.

Drykkja og usli, gömul sár og bældar langanir. Þessi orð eru notuð til að lýsa sýningunni Djöflar, sem verður frumsýnd í Bargarleikhúsinu á næstu dögum. Við erum að tala um ógleymanlega erfidrykkju, með óljósum leikreglum, svörtum húmor og kostulegum uppákomum. Leikararnir Vala Kristín Eiríksdóttir og Hilmir Snær Guðnason koma til okkar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,