Morgunútvarpið

Björgun á Flateyri,pólsk kvikmyndahátið,fréttir vikunnar og karlar kjarnakvenna fá rödd,

Minnsta pólska kvikmyndahátíð í heimi fer fram í Valhöll á Eskifirði um helgina. Dagskráin spannar heimildamyndir, fjölskyldumyndir, drama og gamanmyndir, auk stuttmynda og sígildrar pólskrar ádeilu frá 1982. Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar, verður á línunni.

Björk Jakobsdóttir, Salka Sól Eyfeld og Selma Björnsdóttir hafa snúið aftur saman á svið í sýningunni Bíddu bara! Þetta reddast. Þar opna þær sig um áskoranir lífsins en við ætlum ekki að fá þær í þáttinn að þessu sinni. Elskhugar þeirra fá nefnilega á baukinn í sýningunni án þess að fá rönd við reist og við ætlum því að gefa þeim tækifæri til að svara fyrir sig í beinni útsendingu. Gunnar Helgason, Arnar Freyr Frostason og Kolbeinn Tumi Daðason koma til okkar.

Björgunarsveitarmennirnir Magnús Einar Magnússon og Ívar Kristjánsson tóku þátt í björgunarstarfi þegar snjóflóðin féllu á Flateyri 14. janúar 2020. Flóðin fóru yfir varnargarðana, annað í höfnina en hitt lenti á húsi þar sem unglingsstúlka grófst undir og var bjargað. Þeir ætla að deila reynslu sinni á alþjóðlegu björgunarráðstefnunni Björgun 2026, í Hörpu um helgina. Þar verður fjallað um fjölbreytt og spennandi málefni úr heimi leitar- og björgunarstarfs fluttir rúmlega 50 fyrirlestrar af íslenskum og erlendum sérfræðingum.

Við förum yfir fréttir vikunnar með Eddu Hermannsdóttur, forstjóra Apótekarans og Erni Úlfari Sævarssyni hugmyndasmiði og einum af spurningahöfundum Landsleikanna.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,