• 00:13:32Vetrarfrí
  • 00:30:25Þingmenn ræða nýtt námsmat
  • 00:50:13You Can See Everything
  • 01:15:29Fréttir vikunnar

Morgunútvarpið

Halla Gunnars um vetrarfrí í leikskólum,nýtt námsmat,fréttir vikunnar og You Can See Everyting

Vetrarfrí eru í grunnskólum víða um land og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, bendir á í pistli á Facebook að foreldrar í Reykjavík þurfi nú að greiða 5.000 krónur fyrir hvern skráningardag í leikskólum og að svipað sé uppi á teningunum í fjölda sveitarfélaga. Halla bendir einnig á að vetrarfrí grunnskóla hafi ekki verið til umræðu árið 2018 þegar fyrsta barnið hennar byrjaði á leikskóla. Halla segir að við undirritun gildandi kjarasamninga hafi verið lagt upp með að leggja ekki auknar álögur á barnafólk en því miður hafi reyndin orðið þveröfug í leikskólamálum. Við heyrum í Höllu.

Unnið er að því að koma á nýju námsmati í grunnskólum landsins en Morgunblaðið greindi frá því í vikunni að mikil óánægja sé með breytingarnar og að þær séu ekki til þess fallnar að stuðla að markmiðum ráðherra um samræmi og aukið jafnræði milli nemenda. Við höfum fjallað um málið útfrá sjónarhóli kennara en ætlum að þessu sinni að fá til okkar þingmennina Ingibjörgu Ísaksen úr Framsókn og Guðmund Ara Sigurjónsson úr Samfylkingunni.

Kvikmyndagerðarmaðurinn Nathan Fielder er um þessar mundir að senda frá sér heimildarmyndina You Can See Everything, sem fjallar um Elizabeth Holmes. Hún er dæmdur fjársvikari og fyrrverandi frumkvöðull í líftæknigeiranum og varð heimsfræg þegar hún kynnti til sögunnar græju sem átti að greina fjölbreytta sjúkdóma í gegnum einn blóðdropa. Gríðarleg eftirvænting er fyrir myndinni og annað eins hefur varla sést. Við vitum hins vegar ekki hvenær myndin verður sýnd á Íslandi og ætlum að fá Vilhelm Neto og Margréti Maack til að ræða um erfiðleikana sem fylgja biðinni.

Leiklistarsystkinin Kristín Pétursdóttir og Starkaður Pétursson koma til okkar og fara yfir fréttir vikunnar. Þau eru saman með hlaðvarpið Matador þar sem þau láta gamminn geisa.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,