Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Ósáttir oddvitar,ósáttur Friðrik Dór,ósáttir listamenn,Höddi Magg og fréttir vikunnar

Oddvitar og sveitarstjórar í Flóa og uppsveitum Árnessýslu mótmæltu áformum ríkisstjórnarinnar um hækkun virðisaukaskatts á baðlón og gjaldtöku á ferðamannastöðum á fundi með þingmönnum kjördæmisins í vikunni. Á landsbyggðinni hefur hækkun virðisaukaskatts á baðlón verið kölluð landsbyggðarskattur en hvað segja oddvitarnir núna? Er verið að hlusta á þá? Jón Bjarnason, oddviti í Hrunamannahreppi, verður á línunni.

Myndlistarmaðurinn Narfi Þorsteinsson birti í vikunni opið bréf til Reykjavíkurborgar þar sem hann gagnrýnir uppsögn borgarinnar á leigusamningi Listhússins að Gufunesvegi 40. Í grein sinni segir Narfi meðal annars að fótunum sé kippt undan fjölbreyttum verkefnum sem þar eru unnin og að verkefnin hafi haft samfélagslegan ávinning langt út fyrir Gufunesið. Reykjavíkurborg sagði nýlega upp fjölda leigusamninga við fólk í skapandi störfum vegna eldvarna. Leigjendum þykja fyrirheit um hverfi lista og frumkvöðla í Gufunesi hafa farið fyrir lítið. Narfi kemur til okkar ásamt Einari Þorsteinssyni borgarfulltrúa.

Ísland mætir Búlgaríu í C-deild Þjóðardeildarinnar á Laugardalsvelli á morgun. Strákarnir mæta eflaust fullir sjálfstrausts til leiks eftir frækinn sigur á Lúxemborg fyrr í vikunni. Hörður Magnússon gagnrýndi liðið eftir dapra frammistöðu gegn Eistum um síðustu helgi en hvernig leggst leikurinn gegn Búlgaríu í hann? Við komumst að því.

Þjálfurum fimleikafélagsins Bjarkar í Hafnarfirði var sagt upp í vikunni vegna fjárhagserfiðleika. Í kjölfarið á fréttum á því sagði tónlistarmaðurinn og Hafnfirðingurinn Friðrik Dór að galin staða væri komin upp og bætti við að áralangt áhugaleysi og hægagangur Hafnarfjarðarbæja hvað varðar rekstrar- og þjónustusamninga við félagið hafi orðið til þess að 1.100 iðkendur sitji eftir í algjörri óvissu. Hvar stendur málið í dag? Friðrik Dór verður á línunni.

Við fáum fjölmiðlakonurnar Þórhildi Þorkelsdóttur og Nadine Guðrúnu Yaghi til að fara yfir viðburðarríka viku með okkur. Þær voru að byrja með hlaðvarpið Önnur mál, sem er einskonar systurhlaðvarp Eftirmála, sem þær hafa haldið úti síðustu ár.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,