Morgunútvarpið

Borgin svarar gagnrýni, boltamömmur, svaðilför yfir Grænlandsjökul og bikarspjall

Niðurskurðurinn í Reykjavík hefur verið gagnrýndur úr ýmsum áttum og formaður Sameykis birti ítarlegan pistil á Facebook-síðu sinni á dögunum þar sem hann sagði meðal annars þegar forstöðumenn félagsmiðstöðva eru færðir til í starfi færist þeir fjær börnunum og borgin útvista verkefnum með tilheyrandi þjónustuskerðingu og aftengingu við nærsamfélagið. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir hins vegar störf fólksins á gólfinu hafa verið vernduð ásamt störfum þeirra sem sinna börnunum. Einar Þorsteinsson, formaður Borgarráðs, kom til okkar

Gamanþættirnir Boltamömmur í Sjónvarpi Símans eru hugarfóstur Lilju Nætur Þórarinsdóttur, leikkonu og handritshöfundar, en hugmyndin kviknaði út frá hennar eigin reynslu sem fótboltamamma. Þættirnir segja frá nýfráskilinni konu sem hellir sér af lífi og sál í heim yngri flokka fótboltans þar sem dramatíkin, keppnisskapið og tilfinningarnar eru áberandi á hliðarlínunni. Við fengum Lilju Nótt og Hannes Þór Halldórsson til okkar en hann leikstýrir þáttunum ásamt Hafsteini Gunnari Sigurðssyni.

Hópur Íslendinga þveraði sjálfan Grænlandsjökul fyrir fjórum árum. Ferðin, sem er talin ein erfiðasta sem hægt er leggja upp í á norðurslóðum, varð grimmri baráttu þegar hópurinn lenti í verstu aðstæðum sem orðið hafa á jöklinum í marga áratugi. Ferðalangarnir Brynhildur Ólafsdóttir og Karen Kjartansdóttir komu og sögðu okkur frá þessu en styttist í við fáum einnig innsýn í þessa miklu svaðilför í sjónvarpsþáttunum Úti á RÚV.

Úrslitaleikirnir í bikarkeppninni í fótbolta eru framundan og þeir verða í beinni á RÚV. Afturelding og Breiðablik mætast í bikarúrslitum karla annað kvöld klukkan 19 og á laugardaginn klukkan 16 mætast Þróttur Reykjavík og sameinað lið Grindavíkur og Njarðvíkur í bikarúrslitum kvenna. Helga Margrét Höskuldsdóttir og Hörður Magnússon komu til okkar í bikarspjall.

Birt

10. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,