Morgunútvarpið

Útför Noregskonungs,Höfðatorgsmálið,reiður Gunni Helga,börn af erlendum uppruna í PÍSA og líðan ungmenna sett á oddinn

Haraldur konungur lést föstudaginn 28. ágúst og útför hans fer fram í Ósló Í dag. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Björn Skúlason, eiginmaður hennar, verða við útför Noregskonungs á eftir en yfirvöld í Noregi ákváðu í öryggisskyni birta ekki lista yfir þá þjóðarleiðtoga sem sækja útförina. Umfangsmikill undirbúningur og öryggisráðstafanir hafa verið gerðar í höfuðborginni. Á línunni hjá okkur var Steinunn Þórðardóttir stjórnarformaður norsk íslenska viðskiptaráðsins en hún var stödd við höllina.

Samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi verður Bókasafnssjóður skorinn niður úr 224,5 milljónum í 142,3. Einn af þeim sem er virkilega ósáttur við þetta er Gunnar Helgason rithöfundur en hann skrifaði færslu á facebook þar sem hann spurði Loga Einarsson hvort þetta væri eitthvað grín? Hann spurði hvort Logi væri búinn gleyma samtali frá því í fyrra þegar haldinn var fundur þar sem barnabókahöfundar lögðu fram greinagerð frá lögmannsstofunni Rétti um lækkun Bjarna Ben árið 2024 á Bókasafnssjóði væri stjórnarskrárbrot. Gunni bætir svo við það greinilega ekkert marka neitt sem þið segið þegar þið talið um auka læsi og menntun barna og biður Loga hoppa upp í ... Gunni var á línunni hjá okkur

Niðurstöður PISA-könnunarinnar 2025 sýna verri árangur íslenskra grunnskólabarna en nokkur fyrri PISA-mæling. Við lok grunnskóla búa 44% íslenskra barna ekki yfir grunnhæfni í lesskilningi. Mennta- og barnamálaráðuneytið hélt blaðamannafund í gær þar sem niðurstöðurnar voru kynntar en einnig hélt fræðafólk frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri fund í Sögu húsakynnum Menntavísindasviðs þar sem farið var dýpra í einstaka kafla skýrslunnar. Þar var meðal annars farið yfir stöðu barna af erlendum uppruna og við fengum til okkar Helgu Birgisdóttir, lektor til rýna í það með okkur hér á eftir.

Barnaheill og Geðhjálp sameina krafta sína og eru á ferðalagi um landið hitta ungmenni og heyra þeirra sjónarmiða um mikilvæg málefni innan þeirra samfélags. Fyrsti hluti ferðalagsins erum Vesturland og Vestfirði og við heyrðum í Kolbrúnu Hrund Sigurgeirsdóttur frá Barnaheillum og spyrjum hvar þau eru stödd, hvernig gangi og hvers vegna þau kjósi fara þessa leið ?

Aðalmeðferð í Höfðatorgsmálinu fór fram fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þremur mönnum er gefin sök tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg 17. Mars. Tveir sakborningar eru mættu í dómsal í gær en þriðji er erlendis og tók þátt í gegnum fjarfundarbúnað. Þorgerður Anna Gunnarsdóttir fréttamaður fylgdist með í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og hún fór yfir það helsta sem þar fór fram.

Birt

9. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,