Morgunútvarpið

Draumaliðsleikarnir,Þjóðleikhússtjóri,breytingaskeiðið og hart tekist á um ESB

Enski boltinn rúllar af stað á föstudaginn og af því tilefni safnast fótboltabullur saman og spila sýndarfótbolta á internetinu. Fantasy-fótbolti bindur saman heilu vinahópana og vinnustaðina en yfir 25 þúsund Íslendinga taka þátt í slíkum leikjum, sem er hæsta hlutfall miðað við höfðatölu í heiminum. 38 umferðir er nýtt hlaðvarp um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League, og við fengum til okkar mennina á bakvið það, þá Albert Þór Guðmundsson og Sindri Kamban í spjall.

Ragga Nagli fór á kostum hjá okkur í gær þar sem hún fór yfir leiðbeiningar fyrir maka kvenna á breytingaskeiðinu. Þetta gerði hún eigin sögn til tryggja öryggi á hættusvæði og koma í veg fyrir refsiaðgerðir. Við köfum enn dýpra í málið og fengum til okkar Hörpu Lind Hilmarsdóttur, hjúkrunarfræðing og meðstofnanda GynaMEDICA og Sonju Bergmann hjúkrunarfræðing.

Umræðan um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið heldur áfram og við fengum til okkar tvo fyrrverandi þingmenn, þá Sigurð Kára Kristjánsson og Guðmunds Steingrímsson til komast loka niðurstöðu um málið.

Nýtt leikár hefst í Þjóðleikhúsinu í næstu viku og Magnús Geir Þórðarson kom til okkar og fór yfir það.

Birt

19. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,