• 00:12:43Ekki smatta!
  • 00:40:34Klósettrukkun veldur usla
  • 00:51:07Þyrlur æra íbúa á Kársnesi
  • 01:20:30Pílumeistari fær eigin pílur

Morgunútvarpið

Pílumeistari,breytingaskeiðið,flugumferð yfir Kársnesinu og rándýr klósettferð

Heilsusálfræðingurinn Ragnhildur Þórðardóttir, okkar allra besta Ragga Nagli, birti á dögunum, leiðbeiningar fyrir maka kvenna á breytingaskeiðinu. Þetta gerði hún eigin sögn til tryggja öryggi á hættusvæði og koma í veg fyrir refsiaðgerðir. Á meðal ráða eru ekki smjatta, anda hátt eða sötra. Og alls ekki hósta. Ragga var á línunni frá Köben og lagði okkur línurnar.

Heitar umræður sköpuðust í baklandi ferðaþjónustunnar á dögunum þegar notandi birti skilti á veitingastað þar sem kom fram það kostaði 950 krónur fyrir aðra en viðskiptavini nota klósettið. Einhverjum fannst þetta til marks um Ísland væri verðleggja sig út af kortinu í ferðaþjónustu á meðan aðrir bentu á veitingastaðir yrðu eitthvað úr því taka á móti heilu rútunum af ferðamönnum sem nýtti sér enga aðra þjónustu en salernin. En hvernig er staðan í þessum málum, þegar stendur til hækka virðisaukaskatt á baðlón? Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, kom til okkar.

Íbúar á Kársnesi hafa tekið eftir aukinni flugumferð yfir heimili þeirra. Þyrlur og einkaþotur fljúga yfir svæðið með talsverðum látum sem varð til þess Finnur Pálmi Magnússon, fjölskyldufaðir í Kópavogi, ákvað kortleggja umferðina til komast því hvort umferðin væri aukast eða hvort hann hreinlega bara orðinn miðaldra. Hann kom til okkar og fór yfir þetta með okkur.

Pílukastarinn Alexander Veigar Þorvaldsson varð á dögunum fyrsti Íslendingurinn sem fær samning við stórfyrirtæki í pílukastheiminum. Hann sagði í samtali við Vísi samningurinn við Shots breyti miklu fyrir sig en samningurinn tryggir honum meðal annars sína eigin pílur. Við fengum Alexander til okkar í spjall um píluna, sem tröllríður öllu um þessar mundir.

Birt

18. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,