Maður er nefndur

Leyft öllum aldurshópum

Stefán Karlsson

Í þessum þætti ræðir Sigurður G. Valgeirsson við Stefán Karlsson handritafræðing. Stefán segir frá ætt sinni og uppruna og uppvaxtarárunum á Akureyri. Hann rekur skólagöngu sína, segir m.a. frá veru sinni í Menntaskólanum á Akureyri. Hann segir frá ferðalagi til Kaupmannahafnar og námi við Hafnarháskóla. Stefán talar um starf sitt sem handritafræðingur og helstu viðfangsefni á því sviði. Stefán lýsir vinnu í Árnastofnun í Kaupmannahöfn og kynnum sínum af Jóni Helgasyni. Hann talar einnig um útgáfustörf, stjórnmál og fleira. Þá segir Stefán frá heimkomu til Íslands eftir um tveggja áratuga dvöl í Kaupmannahöfn og störfum við Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi. Dagskrárgerð: Ásgrímur Sverrisson.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Maður er nefndur

Þættir úr safni sjónvarps.

Þættir

,