
Maður er nefndur
Þættir úr safni sjónvarps.
Í þessum þætti ræðir Hannes Hólmsteinn Gissurarson við Björgu Einarsdóttur rithöfund. Björg segir frá ætt sinni og uppruna og æskuárunum. Hún segir frá lífi sínu, þátttöku sinni í stjórnmálastarfi og ritstörfunum en hún hefur skrifað fjölda bóka um brautryðjendur úr röðum kvenna. Björg talar einnig um Kvennafrídaginn árið 1975 og segir frá aðdraganda þessa merka dags. Hún ræðir um kjör kvenna og þá þróun sem orðið hefur á sviði jafnréttismála. Dagskrárgerð: Ásgrímur Sverrisson.

Þættir úr safni sjónvarps.