
Lestin
Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Fyrir helgi kom út platan Líf 2. Tónlistarkonan Tatjana Dís hefur getið sér gott orð á undanförnum árum með hljómsveitunum Digital Ísland og Ex Girls en stígur hér fram í fyrsta sinn sem sóló-artisti. Við tókum stöðuna á Tatjönu.
Kvikmyndin Vaterland eða Föðurland eftir Pavel Pavlakovski var ein af sigurmyndunum á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Hún fylgir eftir rithöfundinum Thomas Mann og dóttur hans Eriku á ferðalagi um klofið Þýskalandi beint í kjölfar seinni heimsstyrjaldar. 82 mínútur, svarthvít og hyldjúp bíómynd. Við fáum Gauta Kristmannsson prófessor í þýðingafræði til að spjalla við okkur um Thomas Mann og Föðurland.
Við fáum pistil frá Frakklandi. Einar Már Jónsson var á staðnum fyrir tæpum 60 árum þegar stúdentar mótmæltu í París 1968 og nú fylgist hann aftur með mótmælum ungs fólks í landinu. Hann lýsir því hvernig staðan blasir við honum eftir mótmæli helgarinnar.

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.