Lestin

Ísraelskir hermenn segja frá stríðsglæpum, Berndsen á vinnustofunni, Hvíta gull Grænlands

Heimildamyndin NAZA var sýnd í Bíó Paradís í gær. Í myndinni koma fram 24 hermenn úr ísraelska hernum undir nafnleynd og afhjúpa þær aðferðir sem herinn hefur notað í þjóðarmorðinu á Palestínumönnum sem hefur geysað frá hryðjuverkaárás Hamas þann 7. október 2023. Myndin hlaut afar góðar viðtökur á Kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í september en leikstjórar hennar, Yuval Abraham og Rachel Szor, hafa þurft að fara í felur vegna harðra viðbragða samlanda sinna í Ísrael. Við ræðum myndina nánar í þættinum í dag.

Tónlistarmaðurinn Davíð Berndsen tekur á móti Katrínu Helgu Ólafsdóttur sem hefur í haust heimsótt vinnustofur ýmissa listamanna. Berndsen hefur aðsetur á Hólmaslóð og í stúdíói hans má finna verkfæri, bækur, málverk og ýmsar skemmtilegar græjur sem gera alls konar hljóð.

Danska heimildarmyndin Osugiak: eða Hvítagull Grænlands fjallar um krýolítnámur sem Danir ráku á vesturströnd Grænlands í meira en 130 ár fram til ársins 1987. Myndin vakti hörð viðbrögð eftir að hún var sýnd í Danska ríkissjónvarpinu í fyrra og var tekin úr sýningum þar auk þess sem fréttastjórinn sem bar ábyrgð á því að myndin var sýnd var rekinn. Bryndís Björnsdóttir og Kristín Loftsdóttir mæta og segja frá myndinni sem verður sýnd í kvöld í Norræna húsinu sem hluti af viðburðinum Frásgnarfullveldi og ritstkoðun.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Lestin

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

Þættir

,