Brot af því besta í vetur og sumarlestur
Í Húllumhæ: Bjarni og Anja fara yfir liðinn vetur og skoða brot af því besta. Við kynnum okkur sumarlestrarátakið Leitin að ævintýraheiminum.
Í Húllumhæ: Við kynnumst nýjum tónlistarsnillingi í Upptaktinum, kíkjum í heimsókn í félagsmiðstöðin Djúpið á Ísafirði og hittum Guðmund Einar, leikstjóra og einn handritshöfunda Kanarí sem segir okkur frá nýrri seríu af grínþáttunum.
Umsjón:
Þuríður Davíðsdóttir
Fram komu:
Ágúst Davíð Steinarsson
Sophia Kristín E Halldórsdóttir
Pétur Þór Jónsson
Guðmundur Einar Láru-Sigurðsson
Steiney Skúladóttir
Handrit og dagskrárgerð:
Karitas M. Bjarkadóttir

Í þáttunum Húllumhæ er menning og fjör í forgrunni. Við förum í leikhús, hlustum á tónlist, rýnum í bækur og sjáum hvað unga fólkið í landinu er að fást við. Þáttastjórnendur eru Anja Sæberg og Bjarni Kristbjörnsson