
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Litla Ló býr með Kisu, bróður sínum Húgó, foreldrum sínum - og líka álfinum Búa sem býr í holu í veggnum. Búi er algjör töframaður og á hverjum degi býður hann Litlu Ló og Kisu í nýtt ævintýri úti í náttúrunni.
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Stuttir fræðsluþættir um fæðuofnæmi og fæðuóþol. Ungmenni sem þjást af slíku deila reynslu sinni auk þess sem rætt er við ofnæmislækna og aðra sérfræðinga. Framleitt af Skot í samvinnu við Astma- og ofnæmisfélag Íslands.
Barna- og ofnæmislæknarnir Michael Clausen og Sigurveig Þ. Sigurðardóttir, næringarfræðingurinn Fríða Rún Þórðardóttir og hjúkrunarfræðingurinn Tonie Gertin Sørensen fræða okkur um fæðuofnæmi og fæðuóþol.

Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Hópurinn vaknar í dimmum helli. Þar er risatröllið Rauður með kindahjörð sína og hótar að breyta þeim í sauði nema þau geti leyst þrjár þrautir. Með heppni og klókindum tekst þeim að snúa vörn í sókn. Kindahjörðin ýtir Rauð fram af kletti og breytist aftur í fólk.
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
Ný íslensk heimildarþáttaröð í stjórn Ara Eldjárns um íslenskar kvikmyndir. Í hverjum þætti er ein sígild kvikmynd tekin fyrir. Skyggnst er á bak við tjöldin og áður óséð myndefni birt. Rætt er við leikstjóra, handritshöfunda, framleiðendur, leikara, búninga- og leikmyndahönnuði, kvikmyndastjóra, klippara og fleira fagfólk, sem ljóstra upp ýmsum leyndarmálum frá gerð myndanna.
Fjallað er um gerð hinnar ástsælu gamanmyndar Stellu í orlofi frá 1986. Meðal þeirra sem fram koma eru Edda Björgvinsdóttir, Laddi, Guðný Halldórsdóttir, Þórhildur Þorleifsdóttir, Halldór Þorgeirsson, Jón Karl Helgason, Ingibjörg Briem og Ingólfur Eldjárn.
Gamanmynd frá 1986 um hana Stellu sem er orðin þreytt á daglegu amstri og skellir sér í orlof þar sem bíða hennar ótrúlegustu ævintýri. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifdóttir og meðal leikenda eru Edda Björgvinsdóttir, Laddi og Gestur Einar Jónasson.
Bandarísk kvikmynd frá 2016 í leikstjórn Stephens Gyllenhaal. Heidi DeMuth er ung stúlka og býr með móður sinni sem er með þroskaskerðingu. Hana langar að vita meira um uppruna þeirra mæðgna en þekkir enga ættingja sína. Hún ákveður því að ferðast þvert yfir Bandaríkin upp á eigin spýtur í von um að finna svörin. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu eftir Söruh Weeks. Aðalhlutverk: Talitha Eliana Bateman, Alfre Woodard og John Heard. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Bresk sakamálamynd byggð á sögu eftir Caroline Graham þar sem Barnaby lögreglufulltrúi glímir við morðgátur í ensku þorpi. Meðal leikenda eru Neil Dudgeon og Nick Hendrix. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.