
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Í þessum síðasta þætti vetrarins kannar Ari Páll lúpínuna🪻
Gleðilegt sumar og sjáumst aftur í haust!
Myndefni frá Kvikmyndasafni Íslands.
Mynd sem Þjóðhátíðarnefnd lét gera um stofnun lýðveldis á Íslandi á Þingvöllum 17. júní 1944 og hátíðarhöldin í Reykjavík 18. júní. Ekki voru allir á eitt sáttir um gæði myndarinnar þegar hún kom út og hún hefur því sjaldan verið sýnd. Myndin er þó einstök heimild um þennan mikilvæga dag í sögu þjóðarinnar. Kvikmyndataka: Kjartan Ó. Bjarnason.
Eva María Jónsdóttir og Pétur Blöndal fara í rannsóknarleiðangur og draga fram þræði ljóðsins í íslensku samfélagi. Hafa ljóð þýðingu í tilverunni og geta þau breytt lífi fólks? Þau skoða þætti sem ná yfir allt frá leikskólum til elliheimila, vöggu til grafar, ást til haturs, tónlist til myndlistar, göldrum til vísinda, rímum til rapps og landnámi til þessa dags. Dagskrárgerð: Jakob Halldórsson.
Í þættinum vinnum við með minni, ljóð og arfleifð. Við skoðum meðal annars hvort krakkar í yngstu bekkjum grunnskóla ráði við að læra ljóð utanbókar og hvernig arfleifðin lifir í ljóðum frá landnámi.
Kvikmyndasafn Íslands geymir fjársjóð af kvikmyndum sem sýna íslenskan veruleika snemma á síðustu öld. Egill Helgason og Gunnar Tómas Kristófersson rýna efni og sýna efni sem jafnvel enginn hefur séð. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Í þessum þætti fjöllum við um það sem við köllum hátíðavandann - tilraunir til að kvikmynda stórhátíðir sem Íslendingar héldu, líkt og Alþingishátíðina 1930 og Lýðveldishátíðina 1944. Það gekk stundum heldur brösulega og sumt misheppnaðist illa.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Kristrún Frostasdóttir forsætisráðherra og Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokkins eru gestir Kastljóss. Alþingi er á lokametrunum áður en þingi verður slitið og þingmenn í óðaönn við að samþykkja síðustu málin fyrir sumarfrí. Styr stóð um fjármálaáætlun, sem þó var samþykkt í gær, og stjórnarandstaðan vill bæta við þingfundi í ágúst í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB.
Lögreglan hefur tekið í sína þjónustu sérstaka lögregludróna, sem geta stytt viðbragðstíma margfalt og hafa þega sinnt um 500 útköllum. Við kynnum okkur málið.
Heimildarþáttur þar sem saga fjallkonunnar, þjóðartákngervings Íslands, er skoðuð. Hún stígur á stokk og ávarpar fjöldann ár hvert á þjóðhátíðardegi Íslendinga en hver er hún þessi fjallkona, hvaðan kemur hugmyndin um hana og hvaða þýðingu hefur hún fyrir land og þjóð? Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson og Viktoría Hermannsdóttir.
Svipmyndir af Reykjavík sem Loftur Guðmundsson tók á lýðveldisárinu 1944. Farið er aftur í tímann og fylgst með lífi og uppbyggingu í bæ sem er að breytast í borg. Örar breytingar áttu sér stað og hin mikla fólksfjölgun í Reykjavík kallaði á gríðarlegar framkvæmdir. Gatnagerð og nýbyggingar setja sinn svip á myndina, en einnig börn að leik, sótarar, skátar og sundgarpar. Kvikmyndasafn Íslands setti myndina saman úr tökum Lofts og skannaði hana í góðum gæðum. Loftur náði aldrei að frumsýna myndina sjálfur.

Beinar útsendingar frá bikarkeppni kvenna í fótbolta.
Leikur ÍBV og FH í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í fótbolta.


Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
17. júní haldinn hátíðlegur um allt land

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Halla Tómasdóttir forseti flytur ávarp.
Ein ástsælasta gamanmynd íslenskrar kvikmyndasögu. Hljómsveitirnar Stuðmenn og Gærurnar (Grýlurnar) ferðast um landið og keppa um frægð og frama á milli þess sem ástir og afbrýðisköst setja strik í reikninginn. Myndin er í bættum hljóð og myndgæðum. Leikstjóri: Ágúst Guðmundsson.

Leikin íslensk mynd frá 2020 eftir Uglu Hauksdóttur. Sól, fimm ára, býr með föður sínum í einangruðu húsi við sjóinn. Hún eyðir einmanalegum dögum með ímyndunarafli sínu á meðan tónskáldið faðir hennar tekst á við tónlistina. Þegar Sól sér föður sinn bugaðan af sorg finnur hún hugarró í gamalli íslenskri þjóðsögu. Aðalhlutverk: Björn Thors, Bríet Sóley Valgeirsdóttir og Sigríður Soffía Níelsdóttir.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Gana og Panama á HM karla í fótbolta.
Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.
Fjallað er um Úrúgvæ, Kólumbíu, Paragvæ og Ekvador.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Úsbekistan og Kólumbíu á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Portúgal og Kongó á HM karla í fótbolta.

Umfjallanir um leiki á HM karla í fótbolta.
Uppgjör á leik Portúgal og Kongó á HM karla í fótbolta.

Umfjallanir um leiki á HM karla í fótbolta.
Upphitun fyrir leik Englands og Króatíu á HM karla í fótbolta.

Leikir á HM karla í fótbolta.
Leikur Englands og Króatíu á HM karla í fótbolta.

Samantekt frá leikjum dagsins á HM karla í fótbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
17. júní haldinn hátíðlegur um allt land

Halla Tómasdóttir forseti flytur ávarp.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
17. júní haldinn hátíðlegur um allt land