Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Fimm dagar eru í sveitarstjórnarkosningar, ýmislegt hefur gengið á í aðdragandanum og fylgi flokka tekið breytingum. En hvernig lítur líklegt meirihlutasamstarf út í borginni og hvaða mál gætu haft áhrif á úrslit kosninga? Gestir Kastljóss eru þeir Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus í stjórnmálafræði og Magnús Sigurbjörnsson fyrrverandi framkvæmdastjóri borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins sem heldur úti hlaðvarpinu Korter í kosningar.
Hvaða störf eiga eftir að lifa af gervigreindarbyltinguna og hver ekki? Við komumst að því síðar í þættinum.
Við lítum einnig á íslenska skálann á Feneyjatvíæringnum, stærstu myndlistarhátíð heims, sem hófst fyrir helgi. Listakonan Ásta Fanney Sigurðardóttir er fulltrúi Íslands á hátíðinni í ár.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Þjóðin gengur til kosninga eftir fimm daga, en um hvað er kosið? Reyndir sveitarstjórnarjaxlar spá í kosningaspilin og skiptast á reynslusögum; þau Birkir Jón Jónsson, Grímur Atlason, Heiða Kristín Helgadóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þættinum.
Sænskir heimildarþættir frá 2022. Eftir að Ingvar Kamprad, stofnandi IKEA, lést árið 2018, arfleiddi hann Norrland í Svíþjóð fúlgu fjár, en ekki Smálönd þar sem hann fæddist. Ákvörðunin vakti mikla undrun auk þess sem skiptar skoðanir voru um hvernig ætti að nota peningana.
Sænskur matreiðsluþáttur í umsjón Anne Lundberg og Pauls Svensson. Þau grænvæða vinsæla rétti og skora á kokka að vinna með nýstárlegt hráefni. Jurtaríkið er einungis nýtt að hluta til matar og því er þar enn falin matarkista. Þau ferðast um Skán í leit að hinu óþekkta græna hráefni.

Ævintýri Tulipop er skemmtileg þáttaröð um litríkan vinahóp sem býr á töfraeyjunni Tulipop. Á hverjum degi gerast ný ævintýri á eyjunni sem sem geta haft áhrifaríkar afleiðingar í för með sér en vináttuböndin reynast ævinlega traust.
Krákutá byrjar að gjósa áður en Gló nær að klára að búa til nýja-húsa-seyðið sitt. Hafragrautur vellur úr Krákutá og yfir hús Glóar. Gló hefur engar áhyggjur enda nýja-húsa-seyðið næstum því tilbúið. Hún flytur inn til Búa bróður síns til þess að klára að útbúa seyðið. Seyðismallið gengur frekar brösulega þangað til að Búi kemur henni til bjargar og í sameiningu tekst þeim að lokum að malla splúnkunýtt og hárnákvæmt húsa-seyði.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Í dag höldum við áfram að útskýra sveitarstjórnarkosningarnar. Í þessum þætti er sjónum beint að mikilvægu hugtaki: framboðslistum.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Skakkir hvatar í skipulagsferlum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu gera að verkum húsnæðisuppbygging verður of dýr og áherslan verður á magn umfram gæði, að mati Eddu Ívarsdóttur borgarhönnuðar, sem starfaði lengi hjá Reykjavíkurborg. Hún leggur til að sveitarfélögin leiti leiða til að færa hönnunina fyrr inn í ferlið, til að spara fjármagnskostnað og gera uppbyggingu mannvænni. Við ræðum Eddu.
Við ræðum líka skipulagsmálin við Ásdísi Hlökk Theodórsdóttur, skipulagsfræðing og fyrrverandi forstjóra Skipulagsstofnunar.
Tröllvaxnir skúlptúrar listamannsins Jóhanns Eyfells eru komnir til Íslands frá Texast. Við fylgjumst með móttökunni.
Sannsögulegir breskir dramaþættir frá 2025 um líf Ruth Ellis, síðustu konunnar sem dæmd var til dauða í Bretlandi árið 1955. Varpað er ljósi á ofbeldisfullt samband hennar við manninn sem hún myrti, réttarhöldin og baráttu hennar fyrir frelsinu. Aðalhlutverk: Toby Jones, Toby Stephens og Lucy Boynton. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Önnur þáttaröð þessara bresku sakamálaþátta. Deilur milli glæpagengja valda glundroða á götum Belfast og nýliðum innan lögreglunnar er ýtt út á ystu nöf bæði í starfi og einkalífi. Aðalhlutverk: Nathan Braniff, Sian Brooke og Katherina Devlin. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Fjórir listar eru í framboði í Suðurnesjabæ fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Anton Kristinn Guðmundsson, Framsóknarflokki og óháðra, Haukur Andreasson, Sjálfstæðisflokki og óháðra, Daði Bergþórsson, Miðflokki og Svavar Grétarsson, Samfylkingu og óháðra.
Oddvitar allra framboða í sveitarfélaginu mætast í umræðuþætti.
Fjórir listar eru í framboði í Fjarðabyggð fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru Þuríður Lillý Sigurðardóttir, Framsóknarflokki, Ragnar Sigurðsson, Sjálfstæðisflokki, Hrafn Bjarnason, Miðflokki og Stefán Þór Eysteinsson, Samfylkingu og annars félagshyggjufólks.