
Árnar þagna
Heimildarmynd frá 2024 eftir Óskar Pál Sveinsson. Fjallað er um áhrif sjókvíaeldis á laxi á lífríki og afkomu bænda sem hafa byggt lífsafkomu sína á hlunnindum af stangveiðum í Noregi og á Íslandi. Í júní 2024 var fjölda laxveiðiáa lokað í Noregi vegna skaðans sem sjókvíaeldi á laxi og loftlagsbreytingar hafa valdið villtum laxastofnum. Rætt er við eigendur norskra laxáa og íbúa í sveitum Íslands um þá framtíð sem gæti beðið þeirra.