Þáttur 6 af 6
Í sjötta þætti fara Dóri og Jón Gnarr í pylsubúð og Dóri hjálpar Sóla Hólm að setja saman IKEA sófa. Einnig kíkir hann á fyndnasta háskólanemann.
Í fyrsta þætti kíkir Dóri í kirkjugarðinn með Sögu Garðars, skoðar bíla með Hjamma, mátar gleraugu hjá Önnu Þóru og fer með Þorsteini Guðmundssyni til dýralæknis.

Dóri DNA spjallar við marga af virkustu grínistum landsins og spyr hvort hægt sé að lifa á gríni einu saman. Hver er galdurinn við húmor og þarf maður að æfa sig í fyndni? Gestir Dóra eru meðal annarra Anna Svava, Ari Eldjárn, Bergur Ebbi, Dóra Jóhannsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Saga Garðarsdóttir, Steindi Jr. og Hugleikur Dagsson. Dagskrárgerð: Gaukur Úlfarsson.