
Færeyskur heimildarþáttur frá 2020 um kokkinn Poul Andrias Ziska og færeyska veitingastaðinn KOKS, sem hefur hlotið tvær Michelin-stjörnur.

Spurningakeppni sveitarfélaga frá 2018. Þátttakendur að þessu sinni eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komust í úrslit árin á undan eða hafa oftast komist nálægt því. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundur og dómari er Jón Svanur Jóhannsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Lið Reykjavíkur: Óttarr Proppé, Eiríkur Hjálmarsson, Auður Tinna Aðalbjarnardóttir.
Lið Íslendinga í útlöndum: Stefanía G. Halldórsdóttir, Bjarni Herrera Þórisson, Veigar Margeirsson.
Ferða- og matreiðsluþáttur þar sem Kristinn Guðmundsson ferðast með vini sínum, Janusi Braga Jakobssyni, og eldar fyrir hann. Að þessu sinni fara þeir félagar um Austurland þar sem Kristinn þykist vera á heimavelli því faðir hans er fæddur og uppalinn á Eskifirði. Janus er aftur á móti nánast eins og algjör túristi. Þeir hitta alls kyns fólk og lenda í ýmsu skakkaföllum en alltaf lenda þeir á fótunum og fá sér í gogginn.
Kristinn og Janus fara til Eskifjarðar, á æskuslóðir föður Kristins. Þeir fabúlera um bæjarfélagið og nærliggjandi staði eins og þeim einum er lagið. Loks flýja þeir veðráttuna inn í lítið bátaskýli og elda sér það dýrindishádegisverð.
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Sigmar ræðir við Sigríði Torfadóttur Tulinius sem hefur búið í London undanfarin ár og er þar í hringiðu breskra stjórnmála. Hún stundaði nám í listaháskólanum hér heima og lærði myndlist en lífið tók u-beygju í hruninu. Hún fór í mastersnám í borgarhönnun og þaðan í lögfræði og starfar nú fyrir skoska þjóðarflokkinn á breska þinginu.
Fróðlegur og skemmtilegur þáttur um fólk sem á rætur um allan heim, en hefur af ólíkum ástæðum sest að á Íslandi. Næstum því einn af hverjum tíu íbúum Íslands er af erlendum uppruna. Sumir komu hingað af því að þá langaði til þess, aðrir áttu fáa aðra kosti. Einhverjir ætluðu bara rétt aðeins að staldra við, en ílentust óvart á lítilli eyju í norðri. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Ragnheiður Thorsteinsson.
Á Íslandi býr fólk af um það bil 140 þjóðernum og tungumálin eru á að giska eitthvað yfir hundrað. Hér er fjallað um sambýli íslenskunnar og allra hinna tungumálanna á Íslandi í dag. Sigga heimsækir ömmu sína og fær að heyra sögu hennar. Amma hennar var flóttamaður í Þýskalandi eftir seinni heimstyrjöldina en eftir að hún réði sig sem vinnukonu í íslenskri sveit, líkt og rúmlega 300 aðrir Þjóðverjar, tók lífið nýja stefnu. Svo heyrum við sögu Davors Purusic, sem upplifði stríðið í Bosníu og er enn að glíma við eftirköstin.


Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?

Önnur þáttaröð um Lalla, sem færir ykkur allan heiminn þegar hann grípur litina sína. Hann er svo flinkur að teikna hann Lalli!

Marri leirkall og vinir hans eru afar uppátækjasamir og í þessum þáttum lenda þeir í háskalegum ævintýrum þar sem þeir búa. Heimkynni þeirra eru fremur óvenjuleg, en þeir búa á borðplötu.
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.

Finnlandssænskir heimildarþættir um kvenlega fegurð og öldrun. Þáttastjórnandinn Eva Kela leit áhyggjur kvenna af því að eldast hornauga en nú þegar hún er sjálf komin yfir fertugt og farin að finna aldursmerki á eigin skinni áttar hún sig á því hversu sterk áhrif fegurðarstaðlar hafa á hana. Hún ræðir við konur komnar yfir fertugt sem veita innsýn inn í breytt útlit sitt og líðan.

Vikinglottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Bein útsending frá almennum stjórnmálaumræðum sem fram fara á Alþingi ár hvert áður en þingstörfum er frestað. Þingmenn og ráðherrar allra flokka taka þátt.
Norskir leiknir þættir frá 2025. Þættirnir gerast í upphafi þessarar aldar og fjalla um Selinu, 17 ára stelpu, sem hefur þurft að þola mikið einelti í skóla. Eftir að hún stofnar bloggsíðu þar sem hún deilir fegrunarráðum og mærir lýtaaðgerðir verður hún skyndilega stærsta og umdeildasta stjarna Noregs. Aðalhlutverk: Elli Rhiannon Müller Osborne, Pås Sverre Hagen og Jon Øigarden. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Norskir leiknir þættir frá 2025. Þættirnir gerast í upphafi þessarar aldar og fjalla um Selinu, 17 ára stelpu, sem hefur þurft að þola mikið einelti í skóla. Eftir að hún stofnar bloggsíðu þar sem hún deilir fegrunarráðum og mærir lýtaaðgerðir verður hún skyndilega stærsta og umdeildasta stjarna Noregs. Aðalhlutverk: Elli Rhiannon Müller Osborne, Pås Sverre Hagen og Jon Øigarden. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.
Fjallað er um Spán, Frakkland, Argentínu og Portúgal.
Breskir spennuþættir um rannsóknarlögreglukonuna Rachitu Ray sem fær stöðuhækkun og er færð yfir í morðrannsóknir. Ekki finnst öllum að stöðuhækkunin hafi verið tímabær en Rachita er staðráðin í að sanna að hún sé tilbúin að taka að sér flókin mál. Aðalhlutverk: Parminder Nagra, Steve Oram og Gemma Whelan. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Keppnir í bikarkeppni karla í fótbolta.
Leikur Aftureldingar og Stjörnunnar í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.