Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.
Eru íslensk fyrirtæki tilbúin undir þær breytingar sem #metoo hreyfingin og umræða um kynferðisbrot hefur í för með sér? Rætt var við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda og Ingunni Agnesi Kro sem situr í stjórnum margra stórra fyrirtækja.
Helga Björnsson var yfirhönnuður hjá þekktu tískumerki í París og hefur einni hannað búninga fyrirr leikhús og óperur. Við kíktum í heimsókn á nýja sýningu hennar í Bankastræti.
Og fór Steingrímur Hermannsson í viðtal við erlendu pressuna á sundskýlu eins og gefið var í skyn í þáttaröðinni Verbúðinni? Kastljós kannaði málið og komst að því að skýlan var enginn skáldskapur.

24 stærstu bæjarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.
Að þessu sinni takast á lið Hafnarfjarðar og Hornafjarðar. Lið Hafnarfjarðar skipa Gísli Ásgeirsson, Silja Úlfarsdóttir og Elíza Lífdís Óskarsdóttir en fyrir Hornafjörð keppa Kristín Hermannsdóttir, Sigurður Hannesson og Þórgunnur Torfadóttir.

Finnlands-sænskir lífsstílsþættir þar sem meðal annars er fjallað um matreiðslu, garðyrkju og föndur.

Heimildamynd um komu panda í dýragarðinn í Kaupmannahöfn. Fylgst er með baráttunni fyrir að fá pöndurnar til landsins þar sem drottningin, forsætisráðherrann og fleiri koma við sögu.

Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu.

Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Guðmundur Ingólfsson var aðeins sex ára gamall þegar hann hóf píanónám hjá Rögnvaldi Sigurjónssyni. Hann fékk ungur mikið dálæti á djasstónlist og varð einn þekktasti djasstónlistarmaður Íslendinga. Hann lék með ýmsum djasssveitum hér heima og í Danmörku og Noregi og lék inn á fjölda hljómplatna, þar af þrjár undir eigin nafni. Hin síðasta, Gling-gló, var fyrsta gullplatan með íslenskri djasstónlist. Dagskrárefnið er úr safni Sjónvarpsins.
Umsjón og dagskrárgerð: Andrés Indriðason.


Hvað ætli gerist þegar hin og þessi skordýr bíta fólk og stinga? Sebastian Klein ferðast um sveitir Danmerkur og lætur bíta sig, brenna og stinga til að komast að því.

Önnur sería af þessari skemmtilegu keppni þar sem danskir krakkar reyna á hæfileika sína á ströndinni og í vatninu í æsispennandi keppni um besta strandvörðinn.

Fimmta serían af Hönnunarstirnunum. Nýir keppendur, nýjar þrautir en Nico og Andrés eru á sínum stað.

Bolli og Bjalla bralla ýmislegt við gerð á þættinum Stundinni okkar.
Álfarnir Bolli og Bjalla lenda í óhappi með símann hans Bjarma og framtíð íslensks barnaefnis er í húfi. Bolli gerir ekkert annað en að slaka á en Bjalla er alltaf að drífa sig, hvað ef þau drífa sig bara að slaka á?

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Fréttir á einföldu og auðskildu máli.
Krakkafréttir dagsins: 1. Bólusetning barna hafin á Íslandi 2. Aldís Kara á EM í skautum 3. Hreindýrasmalar í vanda vegna loftslagsbreytinga
Umsjón: Gunnar Hrafn Kristjánsson

Íslensk tónlistarmyndbönd.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.
Óbreyttar sóttvarnaraðgerðir verða næstu þrjár vikurnar samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra. En hvað þarf til að hann herði reglurnar og telur hann að Landspítalinn hafi brugðist nægilega vel við ástandinu? Stefnir hann að meiri einkarekstri í heilbrigðiskerfinu líkt og framsóknarflokkurinn vildi skoða fyrir kosningar? Willum Þór Þórsson var gestur þáttarins.
Golden Globe verðlaunahátíðin fór fram nánast í kyrrþey í skugga hneykslismála. Chanel Björk Sturludóttir ræddi um hátíðina við þær Sigríði Pétursdóttur kvikmyndafræðing og Sólrúnu Freyju Sen frá Reykjavík feminist film festival.
Fréttir af því að svínshjarta hefði verið grætt í mann vöktu mikla athygli í dag. Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á ónæmisfræðideild Landspítalans, fræddi áhorfendur um vandamálin sem fylgja slíkri aðgerð og líkurnar á því að hjartað dugi til langs tíma.

Heimildarþáttur frá BBC þar sem dr. Chris van Tulleken rannsakar hvort mikið unnin matvæli séu valdur að offitu barna og hvort þau séu jafnvel ávanabindandi.

Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.

Veðurfréttir

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt. Umsjón: Ari Páll Karlsson, Embla Bachmann, Gunnar Hrafn Kristjánsson og Kolbrún María Másdóttir. Handrit og ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
Fréttir á einföldu og auðskildu máli.
Krakkafréttir dagsins: 1. Bólusetning barna hafin á Íslandi 2. Aldís Kara á EM í skautum 3. Hreindýrasmalar í vanda vegna loftslagsbreytinga
Umsjón: Gunnar Hrafn Kristjánsson

Íslensk tónlistarmyndbönd.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.