
Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Guðmundur Ingólfsson var aðeins sex ára gamall þegar hann hóf píanónám hjá Rögnvaldi Sigurjónssyni. Hann fékk ungur mikið dálæti á djasstónlist og varð einn þekktasti djasstónlistarmaður Íslendinga. Hann lék með ýmsum djasssveitum hér heima og í Danmörku og Noregi og lék inn á fjölda hljómplatna, þar af þrjár undir eigin nafni. Hin síðasta, Gling-gló, var fyrsta gullplatan með íslenskri djasstónlist. Dagskrárefnið er úr safni Sjónvarpsins.
Umsjón og dagskrárgerð: Andrés Indriðason.