Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.
Eru íslensk fyrirtæki tilbúin undir þær breytingar sem #metoo hreyfingin og umræða um kynferðisbrot hefur í för með sér? Rætt var við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda og Ingunni Agnesi Kro sem situr í stjórnum margra stórra fyrirtækja.
Helga Björnsson var yfirhönnuður hjá þekktu tískumerki í París og hefur einni hannað búninga fyrirr leikhús og óperur. Við kíktum í heimsókn á nýja sýningu hennar í Bankastræti.
Og fór Steingrímur Hermannsson í viðtal við erlendu pressuna á sundskýlu eins og gefið var í skyn í þáttaröðinni Verbúðinni? Kastljós kannaði málið og komst að því að skýlan var enginn skáldskapur.
