Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.
Framtíð fjölmiðlunar er í mikilli óvissu og lýðræðisleg umræða hefur tekið miklum breytingum. Kristján Kristjánsson ræddi við Loga Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Logi um stöðuna.
Einnig rætt við söngvara hljómsveitarinnar Hoffman, sem segist hafa skrapað botninn áður en upprisan hófst. Hann gerir upp stór mál í lagatextum á nýrri plötu sveitarinnar.
Svo fór Guðrún Sóley á rúntinn með Stebba Hilmars og leikstjóra nýrrar kvikmyndar sem ber heitið Hvar er draumurinn? og byggir á lögum og textum Sálarinnar hans Jóns míns.
Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 24 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.