21:40
Vitjanir (6 af 8)
6. Fjöllin hafa vakað
Íslensk, leikin þáttaröð um bráðalækninn Kristínu sem flytur með unglingsdóttur sinni heim til foreldra sinna í lítið sjávarþorp eftir framhjáhald eiginmannsins. Kristín, sem er raunsæ og jarðbundin, kemst fljótt að því að hún fer langt út fyrir þægindarammann í samskiptum við miðilinn móður sína og neyðist til að horfast í augu við drauga fortíðar. Leikstjóri: Eva Sigurðardóttir. Aðalhlutverk: Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Katla Njálsdóttir og Jói Jóhannsson. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi ungra barna.
Kristín hefur slegið mikilvægu samtali við Ragnar á frest. Einmitt þegar hún ætlar að láta verða af því verður stór sprenging við skólann sem krefst fullrar athygli hennar. Sprengingin veldur miklu álagi á heimili Hönnu.
Er aðgengilegt til 04. september 2027.
Lengd: 48 mín.
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi.
e
Dagskrárliðurinn er textaður.
