• 00:01:16Logi Einarsson um stöðu fjölmiðla
  • 00:13:27Óli í Hoffman segir sögu sína
  • 00:19:32Kvikmyndin Hvar er draumurinn?

Kastljós

Staða fjölmiðla, Óli í Hoffman og Hvar er draumurinn?

Framtíð fjölmiðlunar er í mikilli óvissu og lýðræðisleg umræða hefur tekið miklum breytingum. Kristján Kristjánsson ræddi við Loga Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra Logi um stöðuna.

Einnig rætt við söngvara hljómsveitarinnar Hoffman, sem segist hafa skrapað botninn áður en upprisan hófst. Hann gerir upp stór mál í lagatextum á nýrri plötu sveitarinnar.

Svo fór Guðrún Sóley á rúntinn með Stebba Hilmars og leikstjóra nýrrar kvikmyndar sem ber heitið Hvar er draumurinn? og byggir á lögum og textum Sálarinnar hans Jóns míns.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

3. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.

Þættir

,