
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Serían gerist í litríkum og súrsætum skrímsla heimi þar sem fjölbreytt skrímsli búa í sátt og sæti. Í hverjum þætti kynnumst við nýju skrímsli sem býr yfir vægast sagt sérstökum eiginleikum. Kíkjum við og sjáum hvað setur, kannski við getum kynnst þeim aðeins betur.
Hláturskrímslið er ólíkur öðrum skrímslum. Hann er jafn stór og risaháhýsi og virðist finnast flest allt bráðfyndið. Hann hlær svo hátt að jörðin hristist, hús hrynja og það heyrist í honum til næstu landa. En hann notar að minnsta kosti sólarvörn, það er eitthvað.
Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?
Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Hópurinn vaknar í dimmum helli. Þar er risatröllið Rauður með kindahjörð sína og hótar að breyta þeim í sauði nema þau geti leyst þrjár þrautir. Með heppni og klókindum tekst þeim að snúa vörn í sókn. Kindahjörðin ýtir Rauð fram af kletti og breytist aftur í fólk.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Bjargar Magnúsdóttur og Braga Valdimars Skúlasonar þar sem þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum, meðal annars í taugatrekkjandi stöfunarkeppni og í sérhannaðri útgáfu af hengimanni. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur í þessum þætti eru Jón Svavar Jósefsson, Hallveig Rúnarsdóttir, Þórdís Gísladóttir og Kristín Svava Tómasdóttir.
30 ára ferill Spaugstofunnar og þeirra sem stóðu á bak við hana rakinn í upprifjun á gömlu sjónvarpsefni, viðtölum við mennina á bak við þættina og fjölmarga aðra sem tengdust þeim, birtust í þeim eða voru fórnarlömb þeirra. Umsjón: Gísli Marteinn Baldursson. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson.
Stutt umfjöllun Sumarlandans sem var á flakki sumarið 2022 og hitti landann fyrir í sínu náttúrulega umhverfi, uppi á fjöllum, úti í garði, inni í skógi og allt um kring. Umsjón: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Elsa María Guðlaugs-Drífudóttir, Þórgunnur Oddsdóttir, Sigrún Hermannsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Þáttaröð í tíu hlutum um íslenskar kvikmyndir allt frá fyrri hluta 20. aldar til samtímans. Í hverjum þætti er ákveðið tímabil tekið fyrir, fjallað um kvikmyndir þess tímabils og sýndir valdir hlutar úr þeim. Rætt er við á annað hundrað kvikmyndagerðarmenn, leikara og kvikmyndasérfræðinga um verkin og margvíslega fleti íslenskrar kvikmyndagerðar. Leikstjóri: Ásgrímur Sverrisson.
Á seinni hluta níunda áratugarins fjölgar kvikmyndahöfundum en róðurinn þyngist og áhorfendur eru ekki eins fúsir og áður að fara í bíó einungis vegna þess að myndin er íslensk. Voru fyrirheitin sem íslenska kvikmyndavorið gaf að gufa upp? Frá þessum tíma eru meðal annars myndirnar Stella í orlofi, Foxtrot, Skytturnar, Magnús og Í skugga hrafnsins.
Árið 2016 voru fimmtíu ár síðan Ríkisútvarpið hóf sjónvarpsútsendingar og á þessum fimmtíu árum hefur það sýnt ógrynni af efni allstaðar að af landinu. Í 50 ár eru níu sjónvarpsþættir sem sendir voru út frá vel völdum stöðum á landinu sumarið 2016 þar sem rifjaðar voru upp sögur og svipmyndir af sjónvarpssögu viðkomandi landshluta. Umsjónarmenn: Gísli Einarsson og Guðrún Gunnarsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.
Sextánda þáttaröð þessara margverðlaunuðu þátta sem vakið hafa athygli fyrir nýstárleg og frumleg efnistök. Fólk með þroskahömlun vinnur þættina með fagfólki í sjónvarpsgerð og miðlar þannig fjölbreytileika íslensks samfélags. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Í þessum þætti eigum við opinskátt viðtal við listakonuna Elínu Hall, heimsækjum stórkostlegt listasafn sem alþýðukúnstnerinn Hreinn Halldórsson hefur komið upp á Akureyri og kynnumst fjölhæfum sundmanni sem lætur ekkert stoppa sig. Við fjöllum um þátttöku fatlað fólks í listalífi landsins og atvinnumöguleika og síðast en ekki síst kynnum við til leiks kokkalandsliðið sem ætlar sér stóra hluti á HM í haust.

Gleðiverkfæri Gleðiskruddunnar eru þættir sem byggjast á hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði. Í hverjum þætti er eitt gleðiverkfæri kynnt sem hefur þann tilgang að efla sjálfsþekkingu, jákvæðar tilfinningar, auka vellíðan, bjartsýni og von og um leið aðstoða börn og ungmenni að takast á við verkefni og áskoranir daglegs lífs. Verkefni tengd þættinum má finna á glediskruddan.is
Umsjón: Marit Davíðsdóttir og Yrja Kristinsdóttir.
Hvað eru gleðiverkfæri og hvernig nýtum við þau? Í þessum þætti eru gleðiverkfærin kynnt til sögunnar og æfingin þrír góðir hlutir sem þjálfar okkur í að veita því góða athygli.
Fram koma: Auðunn Hlíðkvist Bjarnason, Freyja Lillý Axelsen Daníelsdóttir, Glódís Káradóttir og Vignir Óli Ýmisson.
Kristín og Arnór kynnast dularfullri stelpu sem grunar sögukennarann um eitthvað skuggalegt. Hvað ætli sé í gangi hjá honum Sigurjóni sögukennara?
Leikarar: Kristín Erla Pétursdóttir, Arnór Orri Atlason, Arnþrúður Karen Viktorsdóttir, Agnes Wild og Karl Pálsson. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir og Elvar Egilsson
Arnór og Kristín leggja af stað með strætó til að heimsækja ömmu Kristínar en villast af leið. Þau hitta dularfulla stelpu sem er að sniglast í kringum hús.
Bolli og Bjalla lýsa hörkuspennandi íþróttakeppni þar sem krakkar keppast við að klára allskonar íþróttaþrautir.
Bjarmi fer í íþróttir í skólanum sínum og Bolli og Bjalla laumast með honum til að kíkja á íþróttatíma. Þar búa þau til æsispennandi keppni á milli tveggja liða sem mætast í þrem þrautum: Svampasundi, Buxnaflækju og Kúlustigakasti.
Liðin keppast við að safna stigum og annað liðið stendur upp úr sem sigurvegari.
Í þessum þætti mætast liðin Stjörnurnar og FHingarnir.
Keppendur eru:
Tristan Ingi Dagsson
Magni Leon Ágústsson
Erla María Akerlie
Birta Marín Ingólfsdóttir
Norsk heimildarþáttaröð um ungt fólk og óvenjulega íþróttir sem það stundar.
Skíði sem eru eins að framan og aftan og gera keppendum kleift að stökkva og lenda afturábak og skíða afturábak án þess að skíðin stingist í snjóinn.
Í safni sjónvarpsins er að finna efni allt frá stofnun þess en sjónvarpið hefur fylgt þjóðinni í sextíu ár. Helga Lára Þorsteinsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir demba sér á kaf í safnkostinn og sýna þjóðinni valda gullmola. Áhugaverð, forvitnileg og óvenjuleg brot úr sjónvarpssögunni sem sum hafa nýlega verið gerð aðgengileg. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Börn og barnamenning hafa alltaf skipað stóran sess í dagskrá sjónvarpsins. Helga Lára Þorsteinsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir kíkja á valið myndefni af börnum úr safni sjónvarpsins og kynna sér líf barna eins og það hefur verið fest á filmu síðan sjónvarpið hóf útsendingar sínar.
Íslensk heimildarmynd um náttúrufræðinginn og fuglaljósmyndarann Jóhann Óla Hilmarsson. Í myndinni fylgjumst við með Jóhanni Óla mynda og rannsaka fuglalíf landsins. Leikstjóri: Heimir Freyr Hlöðversson. Framleiðsla: Compass Films.
Belgískir spennuþættir frá 2025. Árið er 1936 og hópur súrrealista, þar á meðal ungur Salvador Dalí og René Magritte, kemur saman á ensku sveitasetri. Þegar morð er framið liggja allir undir grun. Aðalhlutverk: Pierre Gervais, Stephen Tompkinson og Donna Banya. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Íslensk kvikmynd frá 2022. Unglingsstrákur í Reykjavík, alinn upp af móður með skyggnigáfu, tekur þolanda eineltis undir sinn verndarvæng og inn í vinahóp slagsmálahunda. Þegar vandræði strákanna stigmagnast í lífshættulega atburði fer Addi að fá skynjanir. Á nýfundið innsæi eftir að beina honum á betri braut eða lengra inn í heim ofbeldis? Leikstjóri: Guðmundur Arnar Guðmundsson. Aðalhlutverk: Birgir Dagur Bjarkason, Áskell Einar Pálmason, Viktor Benóný Benediktsson og Snorri Rafn Frímannsson. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 14 ára.