20:15
Á gamans aldri II (1 af 6)
Rúnar Guðbjartsson

Íslenskir viðtalsþættir þar sem skyggnst er inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Í hverjum þætti fáum við innsýn í líf einnar manneskju, heyrum sögu hennar, lífssýn og lærdóm sem hún hefur dregið af lífinu, auk þess sem við ræðum þær áskoranir sem fylgja því að eldast. Dagskrárgerð: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Framleiðsla: Elín Sveinsdóttir.

Hinn 92 ára Rúnar Guðbjartsson ákvað að láta gamlan draum rætast og kaupa sér rauðan blæjubíl. Honum finnst fátt skemmtilegra en að bjóða vinum á rúntinn og hlusta á tónlist. Hann starfaði um áratugaskeið sem flugstjóri. Eftir baráttu við bakkus venti hann kvæði sínu í kross og gerðist sálfræðingur 63 ára. Áföll, sorgir og sigrar lita líf Rúnars sem hefur einsett sér að njóta lífsins á gamans aldri.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 29 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,