19:45
Perlur sjónvarpsins
Tækni

Í safni sjónvarpsins er að finna efni allt frá stofnun þess en sjónvarpið hefur fylgt þjóðinni í sextíu ár. Helga Lára Þorsteinsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir demba sér á kaf í safnkostinn og sýna þjóðinni valda gullmola. Áhugaverð, forvitnileg og óvenjuleg brot úr sjónvarpssögunni sem sum hafa nýlega verið gerð aðgengileg. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.

Tæknin tekur sífelldum framförum og í safni sjónvarpsins er að finna ýmislegt tengt tækni. Helga Lára Þorsteinsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir grúska í kistum safnsins og skoða þar skemmtileg og áhugaverð myndbrot tengd tækninýjungum síðustu 60 ára.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 27 mín.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,